Samkvæmt Times ætlast Bill Gates til þess að þú notir sumarið til að brjóta heilann. Hann hefur gert lista yfir þær fimm bækur sem allir verða að lesa á þessum tíma ársins. Hvers vegna koma slæmir hlutir fyrir gott fólk?
Þeir sem ætla að liggja á ströndinni í sumar þurfa ekki að örvænta. Gates segir þessar bækur verulega skemmtilegar að lesa og að flestar séu verulega stuttar og fljótlesnar.
Hér eru bækurnar sem hann vill að þú lesir:
Leonardo da Vinci, eftir Walter Isaacson
Bill Gates hlotnaðist dagbók eftir Leonardo da Vinci frá árinu 1990. Allt frá þeim tíma hefur hann verið heillaður af listamanninum. „Þessi bók gefur innsýn í hversu sérstakur listamaður da Vinci var,“ segir Gates um bókina. „Þegar þú lítur yfir allt sem listamaðurinn gerði og á þá fáeinu hluti sem honum ekki tókst, þá stendur forvitni hans og tilfinning fyrir kraftaverkum.“
Everything Happens for a Reason: and Other lies I´ve Loved, eftir Kate Bowler
Eina sjálfsævisagan á þessum lista er saga Bowler hvernig hún barðist við krabbamein í ristli. Ástæðan? Vegna þess að hún er að leitast við að spyrja: Af hverju? Bowler er trúrækinn fræðimaður, veltir fyrir sér hugtökum eins og trú og örlögum og fer í gegnum nokkur stig sjúkdómsins. Efnistök eru með húmor og Gates segir eftirtektarvert að geta skrifað sig í gegnum þessa lífsreynslu, á eins heiðarlegan og hreinskilinn hátt og hún gerir, en með húmorinn að vopni.
Lincoln in the Bardo, eftir George Saunders
Saunders skrifar bók sem fjallar um dauða Willie sem er sonur Abraham Lincoln. Þetta er fyrsta bók rithöfundarins. Saunders notar útdrætti úr sögubókum og Gates segir: „Ég elska að sjá hvernig hann notar þessar tilvitnanir til að sýna hversu léleg við erum í að muna fortíðina. Þetta minnir mig á söngleikinn Hamilton, sem fjallar um það sama. Hvernig þeir sem fjalla um söguna breyta henni eða móta hana.“