Langar að lifa á söngnum í framtíðinni

Ólafur Freyr Birkisson bass-barítón er nemandi við Söngskólann í Reykjavík. Hann stefnir að því að leggja sönginn fyrir sig í framtíðinni en hann hefur lært söng í fimm ár í Söngskólanum í Reykjavík. Markmið hans með náminu er að leggja sönginn fyrir sig í framíðinni. Í dag starfar hann sem sölufulltrúi á Borg fasteignasölu.

„Það yrði frábært ef ég næði að hafa lifibrauð af söng einn daginn. Það er markmið flestra sem læra söng að mínu mati.“

Er Söngskólinn góður fyrir það markmið?

„Söngskólinn í Reykjavík gefur manni mjög góðan grunn til þess að halda áfram. Það sést best á öllum þeim frábæru söngvurum sem hafa stundað söngnám við skólann og gera það gott í dag. Það er ótrúlegur mannauður í þeim kennurum sem eru við skólann og þeir leggja mikið upp úr því að miðla sinni reynslu og þekkingu til nemenda. Það einkennir andann í skólanum hvað kennurum er annt um að nemendur taki framförum og gangi vel í náminu.“

Hvað er á döfinni tengt sýningum á næstunni?

„Nú standa yfir æfingar á hinum geysivinsæla söngleik „Fiðlarinn á þakinu“. Sýningar verða í Tjarnarbíói dagana 8. og 9. febrúar. Þetta er sérlega spennandi verkefni þar sem við fáum að njóta þess að hafa hljómsveit skipaða fagfólki. Stór hópur nemenda úr öllum deildum skólans tekur þátt í sýningunni.“

Hvert verður þitt hlutverk í verkinu?

„Ég fer með hlutverk Tevye sem er aðalhlutverkið í verkinu. Hann er margslungin persóna, svolítið geggjaður en mikill hugsuður og heimspekingur. Tevye og Golda, kona hans, eru blessuð með fimm dætrum og fátæktarbasli. Sögusviðið er lítið þorp í Rússlandi rétt eftir aldamótin 1900 og segir frá siðvenjum og lífsbaráttu gyðinga þess tíma. Söngleikurinn er skemmtilegur og hnyttinn en þó er alltaf stutt í alvarleika þeirra hörmunga sem gyðingar urðu fyrir. Það má segja að sögupersónur söngleiksins takist á við erfiðleika lífsins með brosi á vör og jákvæðni að vopni. Sagan á heldur betur við málefni líðandi stundar því hún snertir á aðskilnaði mismunandi þjóðfélagshópa eftir kynþætti, venjum og hugmyndum.“

Hverjir koma að því?

„Leikstjóri sýningarinnar engin önnur en Þórhildur Þorleifsdóttir sem vart þarf að kynna fyrir fólki. Eins fáum við að njóta leiðsagnar danshöfundarins Chantelle Carey sem hefur t.a.m. starfað við Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið. Við nemendurnir erum ótrúlega þakklát að fá að læra af reynsluboltum og fólki sem hefur slegið í gegn í faginu. Tónlistarstjórar eru þau Hrönn Þráinsdóttir og Sigurður Helgi Oddsson.“

Hvað gerist innra með þér þegar þú ert á sviði að syngja?

„Það er erfitt að lýsa því hversu góð tilfinning það er þegar maður stendur á sviði, í karakter og vel gengur. Mér líður eins og ég geti gert allt.“

Ertu sammála því að menning og list sé eitthvað sem allir eiga að finna sér farveg að fást við með einum eða öðrum hætti?

„Það er mikill sannleikur að þátttaka í menningum og list nærir anda og sál.“

Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að syngja?

„Ég söng mikið sem barn og unglingur en hafði aldrei ætlað mér að læra söng. Ég var í kór í menntaskóla og tók m.a. þátt í Jesus Christ Superstar með stórsöngvaranum Eyþóri Inga Gunnlaugssyni sem var þá bara krakki eins og ég.“

Hvernig vissir þú að þú hefðir hæfileika á þessu sviði?

„Mér var sagt í menntaskóla að ég ætti að læra söng en ég ætlaði mér aldrei að læra að syngja. Eftir nokkurra ára hlé frá tónlist þá söng ég með vini tvísöng í veislu. Eftir sönginn var ég óvænt dreginn í Óperukórinn í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes. Ég man sérstaklega eftir því að Garðar hafði ekki mikla trú á að ég sem óreyndur söngvari gæti þraukað í kórnum en hann var tilbúinn að gefa mér tækifæri. Ég mætti því á æfingar og beið eftir því að Garðar myndi senda mig heim. Sá dagur kom aldrei og eftir eitt ár í kórnum var mér boðið að skrá mig í Söngskólann í Reykjavík. Það var mikið heillaspor sem ég er þakklátur fyrir.“

Hver er uppáhaldssöngkennari þinn og af hverju?

„Egill Árni Pálsson tenór. Ég hef lært hjá Agli síðan ég byrjaði söngnám. Þó verð ég að minnast á að í skólanum eru svokallaðar opnar deildir þar sem nemendur koma fram og syngja fyrir aðra kennara svo maður fær tilsögn frá mörgum öðrum t.d. Garðari Cortes, Ólöfu Kolbrúnu, Kristni Sigmundssyni og Bergþóri Pálssyni svo einhverjir séu nefndir. Einnig koma erlendir gestakennarar svo þetta er gróskumikið nám.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál