Framafólk sem breytti til

Fólk á framabraut.
Fólk á framabraut. Samsett mynd

Fólk fylgdi hjartanu á árinu og enn aðrir sögðu frá því hvernig líf þeirra breyttist þegar þeir tóku áhættu á vinnumarkaði. Sumir upplifðu mótvind en þegar upp var staðið sköpuðust ný tækifæri.

Kringlan krækti í Sólrúnu

Samfélagsmiðlastjarnan og metsölubókahöfundurinn Sólrún Diego var ráðin til starfa innan markaðsteymis Kringlunnar. Sólrún starfaði áður sem markaðsstjóri barnavöru verslananna Vonar verslunar og Bíum Bíum. Í febrúar síðastliðnum útskrifaðist hún sem viðskiptafræðing ur með áherslu á markaðssamskipti og samfélagsmiðla frá Háskólanum á Bifröst. 

Sólrún Diego hóf störf hjá Kringlunni.
Sólrún Diego hóf störf hjá Kringlunni.

Björk var skrefi á undan

Fjölmiðladrottningin Björk Eiðsdóttir sagði upp starfi sínu á Fréttablaðinu rétt áður en útgáfu blaðsins var hætt. Seinna var hún ráðin sem fjölmiðlafulltrúi Björgólfs Thors Björgólfssonar viðskiptamanns. 

Björk Eiðsdóttir.
Björk Eiðsdóttir.

Nýr kafli hjá Gumma Kíró

Stjörnukírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, breytti til þegar hann færði kírópraktorstöð sína. Kírópraktorstöð Reykjavíkur sameinaðist Líf Kírópraktík.

Gummi kíró færði sig um set.
Gummi kíró færði sig um set. Ljósmynd/Aðsend

Snorri er sinn eigin herra

Fjölmiðlamaðurinn Snorri Másson hætti á fréttastofu Stöðvar 2. Í vor sagðist hann ætla að prófa eitt hvað annað en endaði svo á að stofna eigin fjölmiðil. Fjölmiðillinn heitir Snorri Más son ritstjóri og er Snorri Másson sjálfur ritstjóri.

Snorri Másson er ritstjóri Ritstjóra.
Snorri Másson er ritstjóri Ritstjóra.

Tækifærin biðu Birnu

Birna Einarsdóttir hætti sem bankastjóri hjá Íslandsbanka eftir umdeilt söluferli á hlut ríkisins í bankanum. Hún sat ekki lengi verkefnalaus og var fljótlega hún orðin stjórn ar formaður í íslenska hönn un ar fyr ir tæk inu FÓLK Reykja vík. Fleiri tækifæri biðu hennar.

Birna Einarsdóttir.
Birna Einarsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tók U-beygju

Böðvar Þór Eggertsson sagði frá því í viðtali við tímarit Smartlands hvernig hann ögraði sér á vinnumarkaði. „Ég er á þeim stað í líf­inu akkúrat núna að ég ætla mér að ná langt og þannig hef­ur það alltaf verið. Ég hef samt gert fullt af mis­tök­um en það er líka allt í lagi. Ég er 55 ára og hef nú tekið U-beygju í líf­inu. Ég ætla að ná jafn­langt í viðskipta­líf­inu og ég náði í hár­inu,“ sagði Böðvar eða Böddi eins og hann er kallaður. Hann gerðist fasteignasali og tók þátt í að gera upp hótel á Blönduósi. 

Böðvar Þór Eggertsson.
Böðvar Þór Eggertsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kaflaskil hjá Hildi Sif

Hildur Sif Hauksdóttir, áhrifavaldur með meiru, hætti sem sem deildarstjóri viðskiptatengsla hjá fjártæknifyrirtæki í London á árinu. „Mér fannst æðislegt að búa í London en var samt meira en til búin að flytja aftur heim til Íslands eftir að hafa öðlast dýrmæta reynslu á alþjóðleg um vinnumarkaði og tilbúin að takast á við ný spennandi tæki færi á Íslandi,“ sagði Hildur Sif í viðtali við mbl.is.

Hildur Sif Hauksdóttir.
Hildur Sif Hauksdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Út í óvissuna

Anna Fríða Gísladóttir, eitt mesta markaðsséní landsins, kom með óvænta tilkynningu í haust. Hún greindi frá því að hún ætlaði ekki að snúa aftur sem forstöðumaður markaðsmála hjá Play eftir fæðingarorlof.

Anna Fríða Gísladóttir.
Anna Fríða Gísladóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ragnhildur Steinunn á nýjar slóðir

Sjónvarpsstjarnan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er alltaf með mörg járn í eldinum. Í vor tók hún og eiginmaður hennar, Haukur Ingi Guðnason, við búðunum Duxiana og Í gegnum glerið. Með þeim í verkefninu eru vinahjón þeirra, Jón Helgi Erlendsson og Martina Vigdís Nardini. Duxiana var lengi þekkt fyrir að selja hágæða hönnunarvörur í Ármúla. Seinna á árinu voru verslanirnar sameinaðar undir nafninu Verona.

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er einn af eigendum Verona.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er einn af eigendum Verona. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir

Ljósbrá nældi sér í MBA-gráðu

Ljósbrá Logadóttir útskrifaðist með Executive MBA-gráðu frá Háskóla Íslands í júní en hún er einstaklega fróðleiksfús manneskja. Aðdáendur hlaðvarpsins Hæ hæ þekkja Lósbrá vel en hún og Hjálmar Örn Jóhannsson eru par. „Á skólahelgum hittumst við oft í dyrunum og Hjálmar fór beint að skemmta fram á kvöld. Ég pantaði þá bara mat og kúrði fram á kvöld með krökk un um. Þetta er bara stutt tíma bil og allt í einu er þetta búið,“ sagði Ljósbrá meðal annars í viðtali um námið í skólablaði Morgunblaðsins í haust.

Ljósbrá Logadóttir.
Ljósbrá Logadóttir. mbl.is/Arnþór Birkisson

Breyttar áherslur Berglindar

Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi matarbloggari, tók stór skref á árinu. Félag hennar GRGS ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta en matarbloggið hennar Gulur, rauður, grænn og salt var lengi eitt vinsælasta matarblogg landsins. Hún ákvað að snúa sér að nýjum ástríðum. Hún útskrifaðist sem markþjálfi og stofnaði vefmiðilinn Salina.is.

Berglind Guðmundsdóttir.
Berglind Guðmundsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þurfti hugrekki til að taka stökkið

María Stef­áns­dótt­ir, markþjálfi og stjórnendaþjálfi, var forstöðumaður hjá Icelandair en ákvað að fylgja hjartanu fyrir nokkrum árum og skipta um starfsvettvang. „Ég upp­lifði ótta og af­komu­kvíða. Ég hugsaði ekki mikið út í það sem er stærsta breyt­ing­in en það er að vinna ein, kannski sem bet­ur fer því ég er mik­il fé­lags­vera og vön að vinna með fullt af skemmti­legu fólki,“ seg­ir hún í skólablaði Morgunblaðsins og bætti við: „Það tók mig lang­an tíma að taka þessa ákvörðun og ég þurfti mikla markþjálf­un sjálf til þess að þora að taka stökkið og kom­ast yfir ótt­ann. Ég er lán­söm að þekkja mjög marga og er með gott tengslanet. Það hef­ur hjálpað mér og það er nóg að gera hjá mér. Ég er ennþá að vaxa.“

María Stefánsdóttir ákvað að fylgja hjartanu og breyta um starfsvettvang.
María Stefánsdóttir ákvað að fylgja hjartanu og breyta um starfsvettvang. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál