Besta ráðið að vera hugrökk

Nanna Kristín Tryggvadóttir.
Nanna Kristín Tryggvadóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nanna Kristín Tryggvadóttir rekstrarverkfræðingur er á því að konur séu konum bestar. Hún segir besta ráð sem hún hafi fengið vera það að sýna hugrekki og að það sé gott að leita í smiðju þeirra sem geta verið fyrirmyndir þínar í lífinu. 

Nanna Kristín starfar sem aðstoðamaður bankastjóra Landsbankans en hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2009 á hinum ýmsu sviðum. Hún er með meistarapróf í rekstrarverkfræði frá Duke-háskóla í Bandaríkjunum og hefur brennandi áhuga á rekstri fyrirtækja og bankastarfsemi almennt.

„Ég hef starfað á mörgum sviðum Landsbankans. Í upphafi var ég í lánavinnslunni þar sem ég vann með erlendu lánin eftir hrun, sem var mikill skóli. Þaðan fór ég í endurskipulagningu fyrirtækja á fyrirtækjasviði og svo áhættustýringu. Ég starfaði um árabil á verkefnastofu, sem vinnur þvert á deildir bankans. Þá fór ég aftur á fyrirtækjasvið þar til ég var ráðin á skrifstofu bankastjóra þar sem ég er núna. Það er gaman og áhugavert að koma svona víða við í bankanum og gefur manni góða yfirsýn á starfsemi bankans. Það sem er ekki síður dýrmætt er að kynnast fjölmörgu starfsfólki bankans vel.“

Dreymdi aldrei um að vera prinsessa

Nanna Kristín ber það með sér að vera mikil félagsvera. Hún er jákvæð og einlæg og lætur greinilega ekkert stoppa sig.

„Sem krakki var ég aldrei með drauma um að verða prinsessa eða ballerína heldur vildi ég verða endurskoðandi eins og pabbi og var ekki nema sjö ára þegar ég var farin að ræða um móður- og dótturfélög við hann. Ég uppgötvaði það hins vegar í Verslunarskólanum að bókfærsla var ekki eins skemmtileg og ég hélt þannig að hugmyndin um að verða endurskoðandi dofnaði aðeins. Áhuginn á viðskiptum og fyrirtækjarekstri var samt mikill og ég ákvað því að fara á stærðfræðibraut til að halda sem flestum dyrum opnum. Á þessum tíma var Háskólinn í Reykjavík í Ofanleiti og það átti sinn þátt í að ég skráði mig í verkfræði þar, sem var þá í næsta húsi við Versló.“

Nanna Kristín kunni vel við sig í verkfræðinni. „Mig langaði að blanda hagnýtu verkfræðináminu við viðskipti og fjármál og það hvernig samfélagið keyrir áfram, og það var auðvelt í HR. Ég tók einnig þátt í félagslífinu, var varaformaður Stúdentafélagsins á þeim tíma þegar skólinn var að flytja í Nauthólsvíkina og ég fékk því að kynnast skólanum og stjórnendum hans vel.“

Nanna Kristín lauk B.Sc.-prófi í verkfræði árið 2009 og þegar kom að framhaldsnámi stefndi hugurinn til Bandaríkjanna. „Ég fékk góð ráð þegar kom að því að sækja um í erlendum háskólum. Vinkona mín, sem starfar hjá MIT-háskólanum í Bandaríkjunum, ráðlagði mér að sækja um bæði í úrvalsgóðum háskólum og hafa svo aðra háskóla til vara. Hún gat gefið mér faglega innsýn inn í hvernig mismunandi skólar velja nemendur og ráðin frá henni komu sér svo sannarlega vel. Ég á frænku í Bandaríkjunum sem benti mér á að sækja um Duke, sem er einn af betri háskólunum í Bandaríkjunum. Það festist í mér og varð því einn af skólunum sem ég endaði á að sækja um í.“

Þaðan lauk hún meistaraprófi í rekstrarverkfræði árið 2011. Nanna Kristín segir að hún hafi verið opin fyrir því að ílengjast úti, en síðan hafi örlögin tekið í taumana og hún ákveðið að koma aftur heim. „Ég fékk betri atvinnutækifæri heima, það var mikil kreppa í Bandaríkjunum á þessum árum og því erfiðara að fá vinnu en oft áður. Svo saknaði ég bara fólksins míns hérna heima.“

Vinirnir skipta miklu máli

Nanna Kristín segir mikilvægt fyrir sig að tengjast fólki sterkum vinaböndum. Sjálf sé hún í mörgum góðum vinahópum sem hittast reglulega.

„Vinkonur mínar eru einstakar. Þær gegna alls konar stöðum, allt frá fyrirtækjarekstri og pólitík, yfir í kennslu og hönnun og eru allar einstakar fyrirmyndir sem gott er að leita til um stórt sem smátt.“

Hún er á því að allir fari í gegnum áföll í lífinu og að hennar kynslóð sé opnari en margar aðrar fyrir því að leita sér aðstoðar við að vinna úr erfiðum málum, hvort sem það sé hjá sálfræðingi eða góðum vinum.

„Það eru allir að ganga í gegnum eitthvað og þó að maturinn sé lagður á borð klukkan sjö á kvöldin og á yfirboðinu sé allt slétt og fellt þá þurfi flestir einhvern tímann á stuðningi að halda, jafnt í stóru sem smáu.

Ég held einnig að í þessu samhengi sé gott að minna sig á að konur eru konum bestar. Öll viljum við ná árangri, gera líf okkar betra og innihaldsríkara. Þegar ein vinkona þín nær góðum árangri eða klárar flottan áfanga er gaman að samgleðjast henni og þú getur líka leitað í hennar smiðju og fengið ráð og ábendingar um mál sem eru á hennar sérsviði. Ég hef lært mikið af vinkonum mínum og vinum og sótt í þeirra reynsluheim þótt hann sé ólíkur mínum.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Hvað er besta ráðið sem þú hefur fengið í lífinu?

„Ein vinkona mín sagði mér að vera hugrökk og sækjast eftir því sem mig langaði til. Hún spurði mig hvað væri það versta sem gæti gerst ef ég gerði slíkt? Að mínu mati kemur ekkert upp í hendurnar á okkur heldur þurfum við að vera hugrökk í smáu sem stóru.“

Hvað er þá versta ráð sem þú hefur fengið?

„Að hægt sé að treysta öllu fólki. Ég er í eðli mínu með jákvætt viðhorf gagnvart fólki en hef þurft að læra á reynslunni; að það eru ekki allir alltaf í mínu liði. Það er ágæt raunveruleikatengin fólgin í þeirri reynslu. En ætli það sé samt ekki líka bara best að láta fólk alltaf njóta vafans. Fólk er alls konar.“

Mikilvægt að standa saman

Nanna er einn af forsvarsmönnum góðgerðafélagsins Konur eru konum bestar sem stendur árlega fyrir söfnun þar sem seldir eru bolir til styrktar góðu málefni. „Mér finnst mikilvægt að styðja við annað fólk í lífinu og við fjórar sem stöndum á bak við verkefnið eigum það allar sameiginlegt að vilja leggja okkar að mörkum til að gera samfélagið betra. Félagið var stofnað til að kveða í kút þennan gamla frasa um að konur séu konum verstar, því það er ekki raunin. Ég held að konur séu í dag miklu duglegri við að hvetja hvor aðra og standa saman, enda er það miklu skemmtilegra. Í byrjun október munum við standa fyrir sölu á bolum þessa árs og í ár fer allur ágóði til styrktar starfsemi Bjarkahlíðar sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Fréttir af heimilisofbeldi hafa verið áberandi í ár og við vildum styrkja fórnarlömb þess – sem langoftast eru konur og börn. Í fyrra styrkti félagið Kraft, félag ungs fólks með krabbamein, um 3,7 milljónir.“

Hvað finnst þér um vogarafl kvenna í viðskiptum?

„Ég held að það sé ómetanlegt fyrir fyrirtæki að vera með fjölbreyttan hóp stjórnenda og starfsfólks. Þar hefur oft og tíðum því miður hallað á konur í atvinnulífinu, en ég held þó að það sé að breytast. Ég sé alltaf fleiri og fleiri öflugar konur í forsvari fyrirtækja, en líka fleiri karlmenn sem skilja mikilvægi þess að atvinnulífið endurspegli á sem bestan hátt samsetningu okkar samfélags. Það er þó enn þannig að einungis um 11% þeirra sem stýra fjármagni í landinu eru konur, við þurfum að bæta úr því.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál