Söng- og leikkonan Cher er orðin 72 ára en lítur þó ekki út fyrir að vera komin á eftirlaun. Hún getur eflaust þakkað lýtalæknum fyrir andlitið en forminu þarf hún að vinna fyrir sjálf. Cher upplýsti í þætti Ellenar DeGeneres að hún gæti haldið planka í tvær mínútur án þess að svitna, metið hennar væri þó fimm mínútur.
DeGeneres spurði hana út í hvernig hún héldi sér í formi og sagðist Cher gera frekar hefðbundnar æfingar. Þegar kemur að rassæfingum fer hún niður á fjóra fætur og gerir fótalyftur, bæði beint upp sem og til hliðar. Cher mælir með 25 endurtekningum, þremur settum. Hún gerir líka hnébeyjur. Að lokum viðurkenndi stjarnan að hún gerði Zumba en bara heima hjá sér.