Victoria's Secret-fyrirsæturnar Josephine Skriver og Jasmine Tookes halda úti Instagram-síðu þar sem þær veita fólki góð líkamsræktarráð. Þær ræddu kolvetni á dögunum en undafarið hefur verið vinsælt að skera niður kolvetni í mataræðinu til að grennast.
Ef þær Skriver og Tookes þyrftu að velja á milli þess að borða brauð, pasta og hrísgrjón myndu þær velja hrísgrjón. Í raun borða þær mjög mikið af hrísgrjónum og segist Skriver borða hrísgrjón einu sinni á dag á meðan Tookes segist borða hrísgrjón þrisvar á dag.
Vinkonurnar segjast hins vegar ekki borða mikið pasta. Þeim finnst það gott en það er ekki í þeirra daglegu rútínu.