6 ástæður til að forðast sykur

Unnur Pálmarsdóttir, mannauðsráðgjafi og eigandi Fusion.
Unnur Pálmarsdóttir, mannauðsráðgjafi og eigandi Fusion. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

„Jólin er sá tími árs þegar að sykurátið tekur völdin og því er gott að passa enn betur upp á mataræðið, hvíldina og næringuna. Jólaboð og hittingar eru margir, tíminn hverfur frá okkur og við grípum í það sem hendi er næst til að nærast. Oftast er það skyndibitinn sem verður fyrir valinu þegar lítill tími er í sólarhringnum en sem betur fer erum við orðin meðvitaðri um hvað við borðum allt árið. Mikilvægt er að huga vel að líkama og sál. Því langaði mig að minnast á sykurinn sem leynist í ansi mörgum matvælum og er síður hollur fyrir okkur,“ segir Unnur Pálmarsdóttir, mannauðsráðgjafi og eigandi Fusion, í sínum nýjasta pistli:   

Sykur er eitt versta efnið í nútíma mataræði. Sykur getur haft skaðleg áhrif á efnaskipti og stuðlað að alls kyns sjúkdómum. Ég tók saman sex ástæður af hverju þú kæri lesandi ættir að forðast sykur yfir jólin, borða hollt og næringarríkt fæði og stunda heilsurækt yfir hátíðirnar. 

1. Sykur inniheldur engin nauðsynleg næringarefni. Viðbættur sykur (eins og súkrósi og hár frúktósi) inniheldur mikið af hitaeiningum án nauðsynlegra næringarefna. Viðbættur sykur er einnig kallaður tómar hitaeiningar. Það eru engin prótein, ómissandi fita, vítamín eða steinefni í sykri einungis hrein orka. Sykur er einnig mjög slæmur fyrir tannheilsuna. Sykur auðveldar slæman bakteríugróður í munni.

2. Of mikil sykruneysla getur orsakað sykursýki II. Þegar frumur verða ónæmar fyrir áhrifum insúlíns, þá búa frumur til meira af beta-frumum í brisinu. Langvarandi hækkun á blóðsykri getur því valdið alvarlegum skaða. Insúlín veitir mótspyrnu sem verður smá saman minni, brisið getur ekki haldið í við eftirspurn af því að framleiða nóg af insúlíni til að halda blóðsykrinum niðri. Í ljósi þess að sykur getur valdið insúlínviðnámi, kemur það ekki á óvart að fólk sem drekkur svokallaða sykurlausa drykki með sætuefnum er í 83% meiri hættu á að fá áunna sykursýki II.

3. Sykurneysla getur orsakað krabbamein. Rannsóknir sýna að með því að innbyrða mikið af sykri eykur það í miklum mæli meiri hættu á að fá krabbamein. Það eru töluverður vísbendingar sem sýna að sykur geti stuðlað að krabbameini vegna skaðlegra áhrifa þess á efnaskipti í líkamanum.

4. Sykur er mjög ávanabindandi. Sykur getur verið ávanabindandi. Vandamálið við sykur og skyndibitafæði er að það getur valdið losun á dópamíni í heila. Af þessum sökum getur fólk orðið sykurfíklar. Allt er best í hófi.

5. Sykur er orsök offitu hjá börnum og fullorðnum. Margar rannsóknir sýna að tengsl er á milli sykurneyslu og offitu. Vegna áhrifa frá sykri á hormón og heila eykur sykur verulega áhættu á offitu.

6. Skrifaðu niður hvað þú borðar og hvenær. Skrifaðu matardagbók það hjálpar þér að átta þig á því hvort þú ert t.d. að borða og drekka of mikið á kvöldin, sleppir morgunmat eða borðar meira þegar þú ert stressuð/aður. Mikilvægt er að huga vel að fæðinu, drekka nóg af vatni yfir daginn og árangurinn verður meiri. Ég mæli með að borða fimm til sex máltíðir á hverjum degi. Gott er að hafa í huga að allt er best í hófi kæri lesandi og líka sykurinn.

Gleðilega hátíð og farsælt komandi heilsuár 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál