Garpur og Rakel María hætt saman

Garpur I. Elísabetarson og Rakel María Hjaltadóttir eru hætt saman.
Garpur I. Elísabetarson og Rakel María Hjaltadóttir eru hætt saman. Skjáskot/Instagram

Förðunarfræðingurinn og langhlauparinn Rakel María Hjaltadóttir og ljósmyndarinn og fjallamaðurinn Garpur I. Elísabetarson eru hætt saman. Rakel og Garpur fundu hvort annað árið 2020 en nú skilja leiðir.

Rakel og Garpur gerðu saman þættina Okkar Ísland sem sýndir voru á Stöð 2+ og Vísi í vetur og fjalla um útivist og fjallamennsku á Íslandi. 

Rakel hefur gert það gott í hlaupaheiminum undanfarin misseri og hljóp meðal annars 88 kílómetra í Bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í Öskjuhlíðinni á dögunum. 

Smartland óskar þeim Rakel og Garpi góðs gengis á þessum tímamótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál