Fyrrverandi tengdadóttir Íslands, kryddpían Mel B, er nýskilin og vilja hún og Stephen Belafonte ólm losna við höllina sem þau bjuggu í þegar allt lék í lyndi í hjónabandinu. Belafonte sjálfur deildi innliti í húsið á Instagram og má sjá á myndbandinu hversu vel hjónin fyrrverandi bjuggu.
Segist Belafonte hafa eytt næstum því tveimur árum í að endurgera og endurhanna húsið ásamt verktaka. Segist hann vona að fólkið sem kaupi húsið eigi eftir að elska það jafn mikið og fjölskylda hans gerði.
Það er nokkuð ljóst að hægt er að gera kostakjör á húsinu í Hollywood en erfiðlega hefur gengið að selja húsið. The Sun greinir frá því að nú kosti húsið ekki nema 4,5 milljónir punda en upphaflega átti það að kosta sjö milljónir punda.
Ef þú vilt skoða lúxusvilluna sem Mel B bjó í er hægt að horfa á ferðalagið um húsið sem fyrrverandi eiginmaður hennar setti saman hér að neðan.