Heiðrún Lind selur sína smekklegu íbúð

Heiðrún Lind Marteinsdóttir.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, hefur sett sína fögru íbúð á sölu. Íbúðin er við Sporðagrunn 7 í Reykjavík og er 124 fm að stærð. Húsið sjálft var byggt 1957. 

Ljósir og lekkerir tónar eru áberandi í íbúðinni og sést glögglega hvað Heiðrún Lind hefur gott auga fyrir að raða saman hlutum. 

Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting og eru veggir málaðir í bleiku og ljósgráu. Þessi ljósgrái litur flæðir úr eldhúsi fram á gang og býr til hlýlegt yfirbragð án þess að vera of krefjandi. 

Af fasteignavef mbl.is: Sporðagrunn 7

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál