Magnús Ármann og Margrét Íris keyptu eitt dýrasta húsið í Garðabæ

Magnús Ármann og Margrét Íris Baldursdóttir hafa fest kaup á …
Magnús Ármann og Margrét Íris Baldursdóttir hafa fest kaup á Frjóakri 9. Ljósmynd/Samsett

Magnús Ármann fjárfestir og eiginkona hans, Margrét Íris Baldursdóttir, hafa fest kaup á fasteign sem stendur við Frjóakur 9 í Garðabæ. Kaupin fóru fram í janúar. 

Húsið er 655,6 fm að stærð og var byggt 2017. Það var allt hannað að innan af Berglindi Berndsen innanhússarkitekt. Fasteignamat hússins er 261.300.000 kr. en húsið keyptu þau af Antoni Kristni Þórarinssyni athafnamanni. 

Húsið er sérlega huggulegt að utan en það er málað í sveppalit og eru gluggar svartir ásamt handriði í kringum verönd. 

Magnús hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi í meira en tvo áratugi. Einu sinni rak hann skemmtistaðinn Astro sem naut mikilla vinsælda en svo færði hann sig svo yfir í fjárfestingar ásamt Sigurði Bollasyni vini sínum. Magnús var hluthafi í FL Group sem nú kallast Stoðir. 

Stoðir hafa á und­an­förn­um árum farið í gegn­um mikl­ar breyt­ing­ar. Fé­lagið var áður stærsti eig­andi Glitn­is. Í kjöl­far falls bank­ans fór FL Group í greiðslu­stöðvun og nauðasamn­inga og eignaðist Glitn­ir, sem stærsti kröfu­haf­inn, fé­lagið að stór­um hluta. Árið 2017 urðu stór­ar breyt­ing­ar í eig­enda­hópi fé­lags­ins, en þá seldi Glitn­ir Holdco 40% hlut í fé­lag­inu og fé­lög­in S121 ehf. og S122 ehf. keyptu rúm­lega helm­ings­hlut.

Eig­end­ur þeirra fé­laga voru áður lyk­ilaðilar í FL Group fyr­ir hrunið. Meðal eig­enda eru meðal ann­ars Jón Sig­urðsson, fyrr­ver­andi for­stjóri fé­lags­ins, og eig­in­kona hans Björg Fenger, Ein­ar Örn Ólafs­son, Magnús Ármann og Örvar Kærnested. Þá eiga líka Jó­hann Arn­ar Þór­ar­ins­son, for­stjóri Foodco, og Malcolm Wal­ker, eig­andi Ice­land foods í Bretlandi, hlut í fé­lag­inu.

Magnús og Margrét Íris gengu í hjónaband í nóvember síðastliðnum en þau eiga þrjú börn. Það ætti því ekki að þrengja að neinum á nýja heimilinu. 

Frjóakur 9 í Garðabæ er glæsilegt að utan.
Frjóakur 9 í Garðabæ er glæsilegt að utan.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál