Guðmundur Örn keypti 185 milljóna einbýli

Guðmundur Örn Þórðarson hefur fest kaup á einbýlishúsi við Stekkjarflöt …
Guðmundur Örn Þórðarson hefur fest kaup á einbýlishúsi við Stekkjarflöt 22 í Garðabæ. Ljósmynd/Samsett

Guðmundur Örn Þórðarson, fjárfestir sem er oft kenndur við Skeljung, hefur fest kaup á einbýlishúsi við Stekkjarflöt 22 í Garðabæ. Hann greiddi 185 milljónir fyrir húsið. Guðmundur Örn hefur verið töluvert í fréttum síðustu ár en í nóvember seldi hann öll bréf sín í tryggingafélaginu VÍS. 

Húsið við Stekkjarflöt 22 er 191 fm einbýli og var það byggt 1965. Fasteignamat hússins er 89.000.000 kr. sem er töluvert undir kaupverði hússins. Skýringin á því er líklegast sú að búið er að endurnýja húsið að nánast öllu leyti og er eins og nýtt þótt það sé á sextugsaldri. 

Seljandi hússins er Valdimar Tryggvi Kristófersson eigandi og ritstjóri Garðapóstsins. Kaupin fóru fram 28. febrúar síðastliðinn og fékk Guðmundur Örn húsið afhent á föstudaginn var.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál