168 milljóna einbýlishús í Fossvogi

Við Grundarland í Fossvogi stendur 280 fm einbýli sem byggt var 1968. Búið er að taka húsið hraustlega í gegn. Þar er til dæmis splunkunýtt eldhús með fjórum Miele-ofnum og ljósri steinborðplötu. Í eldhúsinu er gott skápapláss og nóg af vinnuplássi. Viftan er staðsett í loftinu og því ekki að þvælast fyrir í daglegu amstri. 

Húsið stendur á góðum stað í Fossvogi og er garðurinn í kringum húsið gróinn. Á góðum dögum er veðursæld mikil á þessu svæði. 

Búið er að endurnýja baðherbergi og er nýtt gólfefni á húsinu. 

Af fasteignavef mbl.is: Grundarland 2

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál