Nektardansklúbbur og spilavíti í leynihöll Pútíns

Vladimír Pútín er sagður hafa byggt höllina fyrir illa fengið …
Vladimír Pútín er sagður hafa byggt höllina fyrir illa fengið fé. Samsett mynd

Teymi stjórnarandstöðumannsins rússneska Alexeis Navalnís sendi frá sér myndband hinn 19. janúar þar sem því er haldið fram að forsetinn Valdimír Pútín eigi 175 milljarða króna leynihöll við Svartahafið. Þá kemur fram að höllin hafi verið byggð fyrir illa fengið fé. 

Navalní sneri aftur til Rússlands 17. janúar síðastliðinn en rússneska lögreglan handtók hann við komuna til landsins. Hann hefur verið úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald. Navalní hafði dvalið í Þýskalandi síðan í ágúst þegar eitrað var fyrir honum en hann telur rússnesk stjórnvöld hafa staðið að baki eitruninni. 

Pútín hefur haldið höllinni leyndri en myndbandið af henni hefur vakið mikla athygli. Horft hefur verið á myndbandið yfir 55 milljón sinnum á YouTube þegar þetta er skrifað. Þar segir Navalní að bandamenn Pútíns hafi borgað fyrir byggingu hallarinnar. Bandamenn Pútíns eru meðal annars olíuforstjórar og milljarðamæringar. 

Í myndbandinu eru bæði sýndar myndir af höllinni og þrívíðar teikningar af henni. Þar má finna sundlaug, leikhús, spilavíti og nektardansklúbb. Höllin stendur um 18 kílómetra frá ferðamannastaðnum Gelendzhik.

Pútín hefur haldið höllinni leyndri.
Pútín hefur haldið höllinni leyndri. Ljósmynd/Alexei Navalní
Höllin stendur við Svarta hafið.
Höllin stendur við Svarta hafið. Ljósmynd/Alexei Navalní
Nektardansklúbbur.
Nektardansklúbbur. Ljósmynd/Alexei Navalní
Spilavíti.
Spilavíti. Ljósmynd/Alexei Navalní
Ljósmynd/Alexei Navalní
Ljósmynd/Alexei Navalní
Ljósmynd/Alexei Navalní
Leikhús er í höllinni.
Leikhús er í höllinni. Ljósmynd/Alexei Navalní
Ljósmynd/Alexei Navalní
Ljósmynd/Alexei Navalní
Ljósmynd/Alexei Navalní
Ljósmynd/Alexei Navalní
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál