Hætti í lögmennsku og gerðist fasteignasali

Heimir Fannar Hallgrímsson lögfræðingur og fasteignasali.
Heimir Fannar Hallgrímsson lögfræðingur og fasteignasali.

Heimir Hallgrímsson, löggiltur fasteignasali og einn af eigendum Lindar fasteignasölu, er menntaður lögfræðingur. Eftir að hafa unnið við lögmennsku í um sjö ár gerðist hann fasteignasali. Nú er hann að undirbúa ferð á Everest en hann smitaðist af fjallabakteríu 2018 og þá varð ekki aftur snúið. 

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að gerast fasteignasali?

„Það var aldrei á stefnuskránni að gerast fasteignasali þegar ég byrjaði að huga að því hvað ég vildi starfa við í framtíðinni, þó að áhugi á fasteignum hafi verið til staðar síðan ég man eftir mér. Án þess að vita nákvæmlega hvað ég vildi gera eftir menntaskóla þá fór ég í lögfræði við Háskóla Íslands og í framhaldinu kláraði ég löggildingarpróf til þess að starfa sem lögmaður. Ég starfaði við lögmennsku í um sjö ár og komst að því að það hentaði mér alls ekki. Þó að lögmennskan hafi verið skemmtileg á köflum þá fannst mér neikvæði hluti starfsins of mikill til þess að vilja starfa á þeim vettvangi til framtíðar. Í framhaldinu má segja að ég hafi slysast inn á þennan starfsvettvang. Það atvikaðist þannig að ég fór utan í vikufrí og allan þann tíma hugsaði ég ekki um annað en þau verkefni sem biðu mín þegar ég kæmi til baka úr fríi. Þegar heim var komið úr fríi opnaði ég blaðið og það fyrsta sem ég sá var auglýsing um starf fasteignasala. Eftir að hafa kynnt mér starfið nánar og farið í viðtal var ekki aftur snúið og hef ég mætt til vinnu brosandi og fullur tilhlökkunar hvern einasta vinnudag síðan ég hóf störf sem fasteignasali,“ segir Heimir.

Heimir eru á leiðinni á Everest.
Heimir eru á leiðinni á Everest.

Hvað drífur þig áfram í starfinu?

„Það er klárlega fólkið sem ég umgengst á hverjum degi. Þá meina ég kúnnarnir, seljendur og kaupendur, og samstarfsfólk mitt á Lind fasteignasölu. Starf fasteignasala er að mínu mati skemmtilegasta starf sem hægt er að hugsa sér og ég hefði ekki getað endað á betri vinnustað þegar litið er til fagmennsku og góðs vinnuanda. Nálægð við kúnnann er mikil og maður hittir skemmtilegt og áhugavert fólk á hverjum degi. Það að kveðja glaða og ánægða kúnna í lok viðskipta er það sem maður stefnir að í hverri einustu eign sem maður tekur í sölumeðferð.“

Hver er mesta áskorunin í starfinu?

„Það er að standa ávallt undir því trausti sem mér er sýnt af hálfu seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Hagsmunir seljanda og kaupanda fléttast að vissu leyti saman þar sem seljandi vill selja og kaupandi vill kaupa. Þegar kemur að kaupverðinu þá eru hagsmunir aðila ekki alveg þeir sömu þar sem seljandi vill selja á sem hæstu verði og kaupandi vill kaupa á sem lægstu verði. Því er mikilvægt að tryggja að seljandi fái hæsta mögulega verð sem markaðurinn er tilbúinn til þess að greiða fyrir eignina á þeim tíma og að sama skapi tryggja jafnræði milli tilboðsgjafa/kaupenda, þ.e. að allir sitji við sama borð og fái að bjóða í eignina og hækka boð sín eftir atvikum. Þá þarf að passa upp á að allar upplýsingar sem hægt er að afla um eignina liggi á borðinu fyrir væntanlega tilboðsgjafa. Það er nú þannig að fasteignasalar sýsla með stærstu viðskipti sem flestir einstaklingar gera á lífstíð sinni og því er afar mikilvægt að það sé gagnkvæmt traust milli aðila.“

Ljósmynd/Aðsend

Nú ertu ekki bara fasteignasali heldur mikill fjallagarpur.

„Ég hef ávallt haft mikinn áhuga á útivist og verið duglegur að þvælast á fjöll frá unga aldri. Bakterían í að klífa hærri fjöll og háfjallamennska hófst þó ekki af alvöru fyrr en árið 2018, þegar ég kynntist Vilborgu Örnu Gissurardóttur og Sigurði Bjarna Sveinssyni eða Sigga eins og hann er kallaður í ferð á Hvannadalshnjúk. Það sama ár fórum við þrjú, ásamt Hrafni Svavarssyni, á topp Mont Blanc. Þremur mánuðum síðar var ég kominn með Vilborgu Örnu ásamt góðum hópi upp í grunnbúðir Everest og þaðan náðum við á topp Island Peak í Nepal.“

Þú ert á leiðinni í mikla svaðilför, hvernig kom það til?

„Eins og svo margir vita þá hefur áhugi minn á Everest alltaf verið mikill. Allt frá því ég las um Everest í grunnskóla hafa blundað í mér draumórar um að vita hvernig tilfinning það er að standa skýjum ofar, á hæsta punkti veraldar. Ég get ekki sagt að Everest hafi verið ofarlega í huganum á mér undanfarin ár en að sjá toppinn með eigin augum árið 2018 og standa í grunnbúðum Everest ýtti enn meira undir þá hugsun að þessi draumur gæti orðið að veruleika einn daginn. Það var svo á síðasta ári sem aðstæður í annars vegar einkalífi og hins vegar vinnulega séð opnuðu óvænt á þann möguleika, að láta þennan draum rætast, að reyna að klífa Everest. Í framhaldinu heyrði ég í Sigga og kannaði hvort þetta væri ekki rétti tíminn í svona verkefni saman. Eftir nokkurra daga umhugsunarfrest þá kom Siggi til baka og sagðist vera til í þetta. Frá því símtali höfum við Siggi verið í miklum undirbúningi vegna ferðarinnar sem og vinnu með Umhyggju – félagi langveikra barna. Frá því ákvörðun var tekin vorum við Siggi ákveðnir í að reyna að láta gott af okkur leiða samhliða ferðinni og munum standa að söfnun með Umhyggju sem ber heitið „Með Umhyggju á Everest“,“ segir Heimir.

Hvernig fer fasteignasala og fjallamennska saman?

„Það fer nokkuð vel saman eins og flest áhugamál ef maður er vel skipulagður. Ég viðurkenni þó að 70 daga ferð til Nepal til þess að klífa hæsta tind veraldar fer ekkert sérstaklega vel saman við sölu á fasteignum þar sem mikill hraði einkennir fasteignamarkaðinn og fasteignasalar þurfa að bregðast hratt við gagnvart kúnnum sínum á hverjum degi. Það sem gerir það að verkum að ég get farið í ferð af þessari stærðargráðu í tíma og umfangi er gífurlega sterk liðsheild og samheldni sem einkennir Lind fasteignasölu og því afar sterkt bakland sem tekur við mínum verkefnum meðan á ferð stendur. Þess má geta að Lind fasteignasala er einn af aðalstyrktaraðilum ferðarinnar sem við Siggi erum afar þakklátir fyrir.“

Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með undirbúningi og ferðinni sjálfri á Instagram-reikningi Heimis, Sigga og Umhyggju.

Ljósmynd/Aðsend
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál