Högni kaupir 100 milljóna íbúð við Hafnartorg

Högni Egilsson hefur fest kaup á íbúð við Geirsgötu.
Högni Egilsson hefur fest kaup á íbúð við Geirsgötu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson hefur fest kaup á 125 fm íbúð við Geirsgötu. Íbúðin er í nýju húsunum við Hafnartorg og er sérlega glæsileg. 

Ásett verð á íbúðum í þessum stærðarflokki á þessu svæði er um 100 milljónir og meira. 

Áður átti Högni íbúð við Bergstaðastræti í Reykjavík sem fór á sölu síðasta vor eins og Smartland greindi frá. 

Íbúðirnar á Hafnartorgi hafa verið töluvert í umræðunni. Þær eru sérlega vandaðar og vel skipulagðar. Í þeim er hærra til lofts en gengur og gerist og einangrun þannig að fólki líður eins og það búi í einbýli. Það er því ekkert skrýtið að Högni hafi fallið fyrir þessari íbúð. 

Ljósmynd/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál