Jónas kaupir eina dýrustu íbúð landsins

Hér er Jónas Hagan Guðmundsson með glæsilegan lax í Eystri-Rangá …
Hér er Jónas Hagan Guðmundsson með glæsilegan lax í Eystri-Rangá árið 2020. Ljósmynd/Aðsend

Jónas Hagan Guðmundsson eigandi Dreisam ehf. hefur fest kaup á einni dýrustu íbúð landins. Íbúðin er í blokkunum við Austurhöfn og stendur við Bryggjugötu. Viðskiptablaðið greinir frá þessu. 

Þar kemur fram að íbúðin sé fokheld en í Morgunblaðinu kom fram að uppsett verð væri hálfur milljarður króna. Úr þessari íbúð er útsýni yfir Reykjavíkurhöfn, Esjuna og sundin blá. Það eru tvennar svalir á íbúðinni en með henni fylgja tvö bílastæði. 

Í íbúðinni eru gluggar á þrjá vegu og því er íbúðin björt og falleg. Þar er líka einstaklega hátt til lofts og vítt til veggja. 

mbl.is fjallaði um íbúðina í lok síðasta árs en þá var búið að gera tilboð í íbúðina en þá lá ekki ljóst fyrir hver kaupandinn væri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál