Við Aðalþing í Kópavogi er að finna 275 fm raðhús sem byggt var 2012. Húsið státar af fallegu útsýni yfir Elliðaárvatn. Í kringum húsið er garður með verönd og heitum potti en á húsinu eru einnig tvennar svalir.
Í eldhúsinu eru eikar innréttingar með granítborðplötu. Í eldhúsinu er tangi sem hægt er að sitja við. Efri skáparnir eru hvítir sprautulakkaðir. Hægt er að labba út úr eldhúsinu út á verönd.
Í stofunni og borðstofunni er stór myndaveggur sem hefur að geyma falleg listaverk. Þar mætast ólík verk á heillandi hátt. Fyrir ofan borðstofuborðið eru tvö ljós frá Secto sem tóna vel við ljós eftir Tom Dixon.
Húsið er sérlega fjölskylduvænt og fallegt eins og sést á myndunum.