Beta Reynis selur Fellsmúlann

Beta Reynis hefur sett íbúð sína í Fellsmúla í Reykjavík …
Beta Reynis hefur sett íbúð sína í Fellsmúla í Reykjavík á sölu. Samsett mynd

Elísa­bet Reyn­is­dótt­ir nær­ing­ar­fræðing­ur, bet­ur þekkt sem Beta Reyn­is, hefur sett útsýnisíbúð sína við Fellsmúla í Reykjavík á sölu. Um er að ræða rúmlega 127 fermetara íbúð en ásett verð eru tæpar 82 milljónir. 

Eldhúsið er skemmtilegt.
Eldhúsið er skemmtilegt. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Beta er búin að taka íbúðina í gegn og skín persónulegur stíll Betu í gegn í íbúðinni. Eldhúsið er með nýlegri eldhúsinnréttingu og skemmtilegum lausnum. Í staðinn fyrir hefðbundna eldhúseyju nýtti Beta gamlan skáp fyrir eyju og setti sömu borðplötu á eyjuna og er á eldhúsinnréttingunni. Fyrir ofan eyjuna nýtur sín ljós frá Louis Poulsen.

Stofan er stór og björt.
Stofan er stór og björt. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Einnig hefur verið nostrað við önnur smáatriði eins og val á málningu. Loft í stofu og í eldhúsi eru máluð í bleikum tón sem er nokkuð óvanalegt. Allt þetta gefur íbúðinni mikinn karakter. 

Af fasteignavef mbl.is: Fellsmúli 12

Gamlir munir setja svip á heimilið.
Gamlir munir setja svip á heimilið. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Fallegar flísar eru á baðherberginu.
Fallegar flísar eru á baðherberginu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál