Svona kynntust Bergur og Helga

Helga Magnúsdóttir býr ásamt eiginmanni sínum Bergi Þorra Benjamínssyni í draumaíbúð sinni í Kópavogi. Bergur Þorri var gestur Heimilislífs á dögunum en þau Helga fluttu nýlega í Kópavog eftir að hafa verið í mörg ár að leita að hentugu húsnæði. Helga segir frá því í þættinum hvernig þau Bergur Þorri kynntust en þau eru búin að vera saman í tíu ár og eru gift. Bæði áttu þau tvíbura með fyrri mökum þegar þau kynntust.  

Helga og Bergur áttuðu sig á því að þau áttu margt sameiginlegt því þegar þau hittust í fyrsta skipti. Bergur Þorri er hreyfihamlaður eftir að hafa lent í slysi þegar hann var tvítugur en Helga er hreyfihömluð vegna læknamistaka sem hún varð fyrir í fæðingu. 

Nú er Bergur Þorri kominn í framboð og sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál