Ný þáttaröð af Dallas-þáttunum verður sýnd í sumar og fjölmenntu Dallas-aðdáendur í grillveislu á Hótel Borg. Þar á meðal var Unnur Steinsson fegurðardrottning.
Teitið var haldið af Stöð 2, en þættirnir verða sýndir á sjónvarpsstöðinni í júní. Bræðurnir JR og Bobby verða á sínum stað í nýju Dallas-þáttunum ásamt Sue Ellen og vonandi hefur þríeykið engu gleymt.
Það var vel við hæfi að halda grillveislu þar sem nokkrar slíkar voru haldnar á Southfork, heimili JR, Bobbys og fjölskyldu þeirra. Eins og sést á myndunum var gleðin við völd og greinilega mikill spenningur fyrir þáttunum.