Jón Gnarr hefur skrifað um ævi eiginkonu sinnar, Jógu Gnarr, en hún lenti í slysi í New York 1980 sem átti eftir að hafa miklar afleiðingar. Jón hefur suðað í eiginkonu sinni í mörg ár að fá að skrifa þessa sögu og loksins gaf hún sig. Þessi magnaða bók segir frá kafla í lífi Jógu þegar hún fór sem au pair til New York og lífið tók óvænta stefnu.
Í gær var bókinni fagnað á ODDSSON og var troðfullt út úr dyrum. Jón Gnarr las kafla upp úr bókinni og hljómsveitin Eva tók lagið.