20 bækur tilnefndar til íslensku hljóðbókaverðlaunanna 2021

20 bæk­ur í fjór­um flokk­um voru til­nefnd­ar til Íslensku hljóðbóka­verðlaun­anna, Storytel Awards 2021. Verðlaunahátíðin er árlegur viðburður þar sem hljóðbókaunnendur og framleiðendur fagna saman útgáfu vönduðustu hljóðbóka undangengins árs. Höfundar ásamt lesurum, og í sérstökum tilfellum þýðendur, eru verðlaunaðir í fjórum bókaflokkum, en þeir eru barna- og ungmennabækur, glæpasögur, skáldsögur og óskáldað efni. Verðlaunaafhendingin fer fram í Hörpu þann 25. mars næstkomandi.

25 hljóðbækur úr hverjum bókaflokki sem komu út á síðasta ári og fengu mesta hlustun og flestar stjörnur hjá Storytel fóru í almenna kosningu. Þar var fólki gefinn kostur á að kjósa sinn uppáhaldstitil í hverjum flokki fyrir sig í opinni kosningu. Í kjölfarið fara nú fimm efstu bækur hvers flokks úr kosningunni fyr­ir fag­dóm­nefnd­ir sem er skipuð af Sverri Norland rit­höf­undi, Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur sjónvarps­konu, Elvu Ósk Ólafsdóttur leikkonu og Sæv­ari Helga Braga­syni­, Stjörnu-Sæv­ari, sem velja að lok­um sig­ur­veg­ara. Að auki mun yngri kyn­slóðin fá sína full­trúa í vali í barna- og ung­menna­flokki.

Dóm­nefnd­in mun hafa það að leiðarljósi að líta heild­stætt á hvert verk enda er það trú aðstand­enda verðlaun­anna að með vönduðum lestri á góðu rit­verki megi bæta við upp­lif­un les­and­ans og hljóðbók­in sé þannig sjálf­stætt verk. Því verða ekki aðeins rit­höf­und­ar verðlaunaðir held­ur einnig les­ar­ar verk­anna og meðal til­nefndra les­ara í ár er fjöldi landsþekktra leik­ara sem léð hafa sögu­per­són­um rödd sína á und­an­gengnu ári.  

Barna- og ungmennabækur 

Orri óstöðvandi – Hefnd glæponanna  

Höfundur: Bjarni Fritzson 

Lesari: Vignir Rafn Valþórsson

Traustur og Tryggur - Allt á hreinu í Rakkavík

Höfundar:: Gunnar Helgason, Felix Bergsson 

Lesarar: Gunnar Helgason, Felix Bergsson

Langelstur að eilífu 

Höfundur: Bergrún Íris Sævarsdóttir 

Lesari: Sigríður Láretta Jónsdóttir

Eyðieyjan 

Höfundur: Hildur Loftsdóttir 

Lesari: Álfrún Helga Örnólfsdóttir

Langafi minn Súpermann 

Höfundur: Ólíver Þorsteinsson 

Lesari: Sigríður Láretta Jónsdóttir

Glæpasögur

Hvítidauði

Höfundur: Ragnar Jónasson

Lesari: Íris Tanja Flygenring, Haraldur Ari Stefánsson 

Stelpur sem ljúga 

Höfundur: Eva Björg Ægisdóttir

Lesari: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir

Fjötrar 

Höfundur: Sólveig Pálsdóttir

Lesari: Sólveig Pálsdóttir

Fimmta barnið 

Höfundur: Eyrún Ýr Tryggvadóttir 

Lesari: María Lovísa Guðjónsdóttir

Illvirki 

Höfundur: Emelie Schepp 

Lesari: Kristján Franklín Magnús

Þýðandi: Kristján H. Kristjánsson

Skáldsögur

Húðflúrarinn í Auschwitz 

Höfundur: Heather Morris 

Lesari: Hjálmar Hjálmarsson 

Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir 

Hann kallar á mig

Höfundur: Guðrún Sigríður Sæmundsen 

Lesari: Selma Björnsdóttir 

Kokkáll 

Höfundur: Halldór Halldórsson 

Lesari: Halldór Halldórsson

Einfaldlega Emma 

Höfundur: Unnur Lilja Aradóttir 

Lesari: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir

Sextíu kíló af sólskini 

Höfundur: Hallgrímur Helgason

Lesari: Hallgrímur Helgason

Óskáldað efni

Björgvin Páll Gústavsson án filters 

Höfundar: Sölvi Tryggvason, Björgvin Páll Gústavsson 

Lesari: Rúnar Freyr Gíslason

Óstýriláta mamma mín og ég 

Höfundur: Sæunn Kjartansdóttir 

Lesari: Sæunn Kjartansdóttir

Ljósið í Djúpinu 

Höfundur: Reynir Traustason 

Lesari: Berglind Björk Jónasdóttir

Útkall - Tifandi tímasprengja 

Höfundur: Óttar Sveinsson 

Lesari: Óttar Sveinsson

Manneskjusaga

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Lesari: Margrét Örnólfsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál