Fólk í stjörnumerki vatnsberans getur verið ánægt með sig þegar kemur að kynlífi. Í könnun sem kynlífsleikfangabúð gerði á kynlífi fólks í öllum 12 stjörnumerkjunum kom í ljós, samkvæmt Popsugar, að vatnsberar stunda mesta kynlífið.
Nú gæti einhver reynt að halda því fram að magn væri ekki sama og gæði en svo virðist sem að svo sé reyndar, að minnsta kosti í þessari könnun. Vatnsberarnir sem fæddir eru frá 20. janúar til 18. febrúar eru nefnilega það stjörnumerki sem er hve ánægðast með kynlífið sitt. Vatnsberinn er líka líklegastur af öllum stjörnumerkjunum til þess að kaupa svipu.
Þessi fimm stjörnumerki stunda mesta kynlífið samkvæmt könnuninni:
1. Vatnsberar (20. janúar til 18. febrúar)
2. Naut (20. apríl til 20. maí)
3. Fiskar (19. febrúar til 20. mars)
4. Meyjur (23. ágúst til 22. september)
5. Ljón (23. júlí til 22. ágúst)