7 leiðir að betra kynlífi fyrir konur

Að tala saman er meðal annars lykillinn að betra kynlífi …
Að tala saman er meðal annars lykillinn að betra kynlífi kvenna. mbl.is/Thinkstockphotos

Kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox kom með nokkrar góðar hugmyndir að því hvernig konur í gagnkynhneigðum samböndum geta bætt kynlíf sitt. Cox bendir á í pistli sínum á Daily Mail að sumar aðferðirnar kunni að hljóma eins og sjálfselska en þær eru það ekki.

Stór hlutur kvenna gæti þurft að breyta hugsun sinni um kynlíf að hennar mati enda sýnir rannsókn að 87 prósent karla fái reglulega fullnægingu á móti 49 prósent kvenna. Ástæðan er að hluta til líffræðileg en líka innbyggð í menningu fólks. 

Hættu að þykjast

Fólk á ekki að gera sér upp fullnægingu og mikilvægt er fyrir konur að tala við maka sinn á meðan þær stunda kynlíf. 

Breyttu hvernig þú hugsar um kynlíf

Það getur hjálpað að breyta hvernig þú hugsar um kynlíf. Typpi og mjaðmir karlmanns gæti þurfti að hugsa frekar um, eitthvað sem hægt er að nudda snípnum upp við og þannig auka örvun.

Hugsaðu eins og maður

Cox segir menn ekki bara leggjast á bakið og bíða eftir að fá fullnægingu. Þeir búast við að kynlíf sé mjög gott og gera það sem til þarf hvort sem það er að breyta um hraða og stellingu. Mælir hún með að konur hugsi um hvernig þær geti lagt áherslu á að örva snípinn. 

mbl.is/Thinkstockphotos

Notaðu typpið til fróunar

Í stað þess að stunda samfarir getur kona sem er ofan á manni nuddað snípnum upp við typpi mannsins, gott er að nota mikið sleipiefni. 

Haltu um rass hans

Þegar maðurinn er ofan á mælir Cox með að konan haldi utan um rass bólfélaga síns og dragi hann að sér til þess að örva snípinn betur. 

Mesta örvunin á sér stað áður

Cox bendir á að meiri líkur séu á því að kona fái fullnægingu í samförum ef hún er orðin mjög æst áður en samfarir hefjast. Maðurinn getur reynt að fá konu til þess að fá fullnægingu með höndum og munni. Það virkar vel og er auðveldara fyrir sumar konur að fá fullnægingu í annað sinn og þá í samförum. Einnig getur hann hætt og þau hafið samfarir rétt áður en kona fær fullnægingu. 

Notaðu titrara

Notaðu kynlífsleikfang í kynlífinu en Cox vill meina að þetta sé auðveldasta leiðin til þess að fá fullnægingu fyrir konur í kynlífi með manni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál