Raunveruleikastjarnan Larsa Pippen hélt því fram í endurkomu þætti af The Real Housewives of Miami að hún og fyrrverandi eiginmaður hennar, körfuboltastjarnan Scottie Pippen, höfðu stundað kynlíf fjórum sinnum á kvöldi.
„Ég var gift í 23 ár, ég stundaði kynlíf fjórum sinnum á hverju kvöldi,“ sagði Pippen. „Svo þrisvar í viku er ekkert. Ég stundaði kynlíf fjórum sinnum á hverju kvöldi, öll kvöld. Ég fékk aldrei frí.“
Pippen sagði að þau hefðu alltaf verið saman líka þegar Pippen var á ferð með Chicago Bulls. Þau voru með einkaflugvél og með börnin með sér.
Hvort sem Pippen var að segja rétt frá eða ekki þá er nokkuð ljóst að hjónabandið fór í skrúfuna. Spurningin um hversu oft á að stunda kynlíf er mjög algeng og ekkert rétt svar. Ekki er óalgengt að fólk stundi kynlíf einu sinni til tvisvar í viku. Kynlíf fólks er ekki endilega betra þó fólk stundi oft kynlíf.