Trúboðastellingin í uppáhaldi

Leikkonan Rachel Bilson elskar trúboðastellinguna.
Leikkonan Rachel Bilson elskar trúboðastellinguna. Samsett mynd

Bandaríska leikkonan Rachel Bilson er ansi ófeimin og opinská þegar kemur að því að ræða um allt er snýr að kynlífi. Leikkonan var gestur í hlaðvarpsþættinum Women On Top, hinn 3. maí síðastliðinn og ræddi þar um eftirlætis kynlífsstellingar sínar og þær sem hún reynir hvað mest að forðast. 

„Ég elska trúboðastellinguna. Ég vil bara láta taka vel á mér,“ sagði Bilson þegar hún ræddi um kynlífsstellingar í hlaðvarpsþættinum. 

Nennir ekki hundastellingunni

Bilson sagði einnig frá því að hún reyni að forðast hundastellinguna eins og heitan eldinn. „Það fer eftir stærð getnaðarlimsins en þegar hann er stór þá getur hann farið svo djúpt og bara meitt, sagði leikkonan.“

Hin 41 árs gamla leikkona er alls ekki ókunn því að opna sig um kynlíf en hún hlaut mikla athygli nýlega þegar hún ræddi um það að hafa verið 38 ára gömul þegar hún upplifði sína fyrstu fullnægingu. „Þetta gerðist ekki fyrir mig fyrr en ég varð 38 ára gömul,“ sagði fyrrum Hart of Dixie-leikkonan við grínistann Whitney Cummings, í hlaðvarpsþættinum Broad Ideas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál