Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi borgarleikhússtjóri, hefur fundið ástina á ný en hún skildi við Katrínu Oddsdóttur lögmann fyrr á þessu ári eftir 16 ára hjónaband.
Sú heppna er Signý Scheving, aðstoðaryfirljósmóðir á Landspítalanum, og hefur parið verið að njóta lífsins í borg ástarinnar, Róm. Signý deildi fallegri myndaseríu af þeim á Instagram og skrifaði við færsluna: „Dásemdar-Rómarferð með konu lífs míns.“
Signý hefur ekki uppfært sambandsstöðu sína á Facebook og er enn skráð einhleyp en nú þegar henni hefur tekist að finna konu lífs síns er líklegt að það breytist á næstu dögum.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!