Katrín Oddsdóttir lögmaður og Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, eru farnar hvor í sína áttina. Katrín og Kristín voru giftar í sextán ár og eiga tvö börn saman.
Vísir greinir frá.
Báðar hafa þær Katrín og Kristín látið til sín taka í þjóðfélagsumræðunni en Katrín er baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks og flóttamanna. Hún sat í stjórnlagaráði og skilaði tillögum að nýrri stjórnarskrá.
Kristín er menntaður leikstjóri frá Lundúnum og hefur stýrt fjölda leiksýninga á síðustu árum. Hún hlaut Grímuna árið 2008 fyrir sýninguna Sá ljóti. Hún var Borgarleikhússtjóri frá 2014 til 2020.
Smartland óskar þeim góðs gengis á þessum tímamótum!