Júníspá Siggu Kling kemur á óvart

Sigga Kling spáir fyrir lesendum mbl.is.
Sigga Kling spáir fyrir lesendum mbl.is.

Spákonan Sigga Kling er komin í sumarskap og rýnir í stjörnurnar. Það er fjörugt sumar í vændum hjá merkjunum í dýrahringnum. Mun Meyjan finna ástina? Fær Krabbinn launahækkun? Mun Hrúturinn ná tökum á ákveðni sinni? Mun Vogin ná að taka stóra ákvörðun? Ef þú vilt vita meira um komandi tíð þá er stjörnuspá Siggu Kling neðst á forsíðu mbl.is. 

Elsku Tvíburinn minn,

þegar þú átt afmæli er einn skemmtilegasti tíminn á Íslandi að mér finnst og þá er bjart nær allan sólarhringinn. Það er eins og þú fljúgir á Boing 747 því þú ert á svo hárri tíðni. Allt er að gerast svo hratt, en samt finnst þér oft eins og ekkert sé að gerast. Þú lætur utanaðkomandi aðstæður sem eru tengdar inn í fjölskyldulíf þitt oft hafa mikil áhrif á þitt andlega ástand. Til þess að vera nógu sterkur til þess að fljúga þessari breiðþotu þarftu að læra að kæruleysi er oft besta meðalið og núna þarftu að taka nógu mikinn skammt af því.

Þú skynjar betur að þú býrð í paradís á þessari jörðu. Bara ef þú gefur þér tíma til að skoða sjálfan regnbogann finnurðu alveg inn í þína innstu vitund að þú ert að upplifa svo merkilegar tilfinningar sem breyta munu lífi þínu. Þú þarft að gefa þér leyfi til að skipta um skoðun, því ef þú gerir það ekki, alveg sama hvað málefnið er, þá færðu ekki þann þroska sem þú þráir.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Krabbinn minn,

þú ert búinn að sýna það og sanna þú sért snillingur í svo mörgu. Og þótt þú fáir ekki það þakklæti eða virðingu sem þér finnst aðrir eigi að sýna þér, skaltu láta þér fátt um það finnast eða bara vera alveg sama.

Þú ert búinn að byggja undir þig miklu meiri stöðugleika en þú í raun og veru finnur í hjarta þínu. Sýndu því bara þolinmæði og kærleika, það er það eina sem þú þarft að gera í stöðunni. Það er margt að breytast hjá þér, þær tengingar eru í sambandi við verkefni og vinnu og þú styrkir upp hluti sem þú samt bjóst ekki við að yrðu aðalaltriðin.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Ljónið mitt,

þú ert barn sólarinnar. Þú hefur sterka skynjun á fegurð og á öllu því sem listrænt er í heiminum. Það er óvenjulega sterk heppni í kortunum þínum á næstunni. Þú verður bjartsýnni og sterkari en þú hefur verið síðustu mánuði og lífsgleðin mun rölta með þér hvert sem þú ferð.

Hins vegar ertu ekki nógu góður mannþekkjari svo þú skalt fá lánaða dómgreind annarra í sambandi við það fólk sem þú leggur of mikið traust til og sem á það ekki skilið. Þú átt það til að vera of hrekklaus vegna þess að þú ert góðmenni og skilur ekki að aðrir geta verið svo illa innréttaðir.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Meyjan mín,

með þína mælsku og innsæi nærir þú allan þann lífsþrótt og hvatvísi sem þú hefur. Merkúr hefur gríðarleg áhrif á þig og gerir þig svo fjölhæfa og eflir þig svo sannarlega í litríkum og notadrjúgum gáfum. Þú hefur þann sérstaka hæfileika að geta fengið annað fólk á þitt band og ert afburða manneskja á sviði lærdóms og stjórnmála.

Það er ekki alltaf gott að vera með mikið af hæfileikum því það ruglar þig í raun og veru í því hvað þú vilt og getur. Sem dæmi þá verðurðu eins og manneskjan sem er klár á skíðum og sérstaklega góð í svigi. Þú getur því sveigt fram hjá hvaða vandamáli sem er og þó það væri snjófljóð í vegi þínum kæmistu léttilega fram hjá því núna. Þú ert svo fljót að hugsa og reikna út hvað er næst í stöðunni að maður gæti jafnvel ímyndað sér þú værir spámaður. Trúðu að ekkert sé of stórt til að yfirstíga það; því ef þig vantar vængi, færðu þá og ef þig vantar rætur, þá færðu þær.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Steingeitin mín, 

það er svo sannarlega hægt að segja þú sért að fara í alls konar tímabil; tími sem er eins og blómvöndur í öllum mögulegum litum. Það gengur betur miklu betur í fjármálaunum en þú hefðir vonað. Svo þú getur þar af leiðandi leyft þér meira en þú bjóst við.

Þú leyfir karakternum þínum blómstra og hættir að vera í þessu lífsleikriti bara til að þóknast öðrum. Þú þorir að framkvæmma það sem þig langar til á öðruvísi og innilegri máta, þér í hag. Það er ástríðufull orka í kringum þig og ef þú átt maka þá þarftu að muna að þið þurfið líka að leika ykkur eins og þið væruð nýtrúlofuð. Farðu í huganum til baka til þess tíma þegar þú varst nýbúin að hitta maka þinn og tilbúin að gera allt sem í þínu valdi stóð til að elska og halda honum. Í ástinni er orðið fyrirgefðu jafn mikilvægt og að segja ég elska þig. Hver dagur gefur þér ný tækifæri og jafnvel getum við sagt að þegar þú vaknar fáir þú nýtt líf og ný tækifæri.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku óþolandi Vogin mín,

þú ert svo óþolandi heppinn að hafa Venus sem áhrifastjörnu. Hún gefur þér svo góðan smekk og þú getur gengið í öll störf.  Það er mikilvægt þú sjáir að það eru að koma breytingar í áhugasvið þitt. Jafnvel í tómstundum eða listrænum verkefnum.

Þú ert að fara að skilja svo vel hvaða karakter býr í þér. Og í þessum merkilega karakter býr persóna sem heldur að hún sé undiralda alls. Hún reynir eins faglega og fallega að stjórna umhverfi þínu og öðrum. En þegar þú þarft að gefast upp og líta á og klippa á strengi, þá verður vöxtur þinn óendanlega sterkur. Þú ert fyrirmynd en þarft ekki að hafa skoðun á öllu, þótt þú hafir rétt fyrir þér. Leyfðu fólkinu kringum þig að skína eins skært og það getur og haltu frekar áfram að hvetja heldur en að segja þína skoðun. Notaðu hjarta þitt sem áttavita, þá gerast ævintýrin og hjartað tengist tilfinningaorkunni þinni eða Sólarplexus. Um leið og þú sérð þú velur Ljósið, þá sérðu ekki skuggana lengur og þú munt láta fugla sorgarinnar fljúga framhjá þér.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Sporðrekinn minn,

það sem er eru einkunnarorðin þín þennan sumartímann eru: „Að lifa er að þora.“ Vendu þig á að taka vinsamlegum ábendingum vina þinna eða félaga og leyfðu þér ekki að láta það draga þig niður. Þú hefur það í eðli þínu að segja þitt álit og koma til dyranna eins og þú ert klæddur. Svo gefðu öðrum í kringum þig líka tækifæri til þess að fá sitt rými. Þegar þú hressir þig við, tekur í hnakkadrambið á þér og hendir þér út í hringiðuna muntu ná langt, hvað sem langt nú þýðir fyrir þér.

Það er svo mikilvægt þú rasir ekki um ráð fram í ástamálunum og leyfir þessari stórbrotnu ástríðu að stjórna þér of mikið. Því þá bíða þín líklega nokkur skipbrot. Höfnun og ást eru með sömu tengingar, svo hugsaðu þig vel um og gerðu þér grein fyrir því. Það er svo mikilvægt þú veljir viturlega og skoðir í Excel hvað muni höfða til þessara sterku týpu sem ert þú.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Bogmaðurinn minn,

ég hef það á tilfinningunni að Bogmenn séu í miklum meirihluta miðað við önnur merki á Íslandi. Ég hreyfi mig vart um skref án þess að hitta einhvern skrafhreifinn Bogmann. Þú hefur litríka og sanna framkomu og það frelsi sem er að koma til þín sem er allt um kring mun gera þig óstöðvandi.

Þetta er skemmtilegur og léttur tími sem þú ert að fara inn í og þú magnar upp litlu hlutina svo þeir verða svo stórir. Það eru nefnilega litlu hlutirnir sem gera lífið. Í þessu frelsi færðu styrk til þess að taka ákvarðanir og það halda þér engin bönd. En þú þarft samt að ákveða hvar þú vilt búa eða eiga heima og ekki flögra með þá ákvörðun. Því ef þú gerir það þá finnurðu ekki kraftinn til að framkvæma það sem þú vilt og óskar þér.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Vatnsberinn minn,

það er alveg sama þó þú hafir áhyggjur af hinu eða þessu, er að það eina sem það færir þér er þreyta. Engar lausnir getur þú fundið þegar þú ert áhyggjufullur, því í þeirri orku felast engin svör. Þeir sem eru fyrstir að kveikja eldana eru frumkvöðlar og í þér býr sá eldhugi. Þú þarft að klára allt sem þú hefur byrjað á, og reyndu að passa þig á því að byrja ekki á of mörgu, því það dregur líka úr mætti þínum. Þú þarft að vera spontant í þessum tíma sem þú ert að fara inn í og ekki undirbúa þig of mikið undir þau verkefni sem þér verða færð. Heldur skaltu vita þegar þú stendur frammi fyrir því, þá færðu réttu orðin og rétta kraftinn.

Láttu alls ekki þá sem fara í taugarnar á þér sjá hvaða líðan þú hefur og af öllu því sem þú hræðist eru svipbrigðin þín merkilegust, því lífið er bara bíómynd og þú ert að sjálfsögðu aðalleikarinn.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Fiskurinn minn,

þér dettur það oft í hug þú hafir ekki afkastað nóg, þar sem plánetan Mars er svo sterk yfir stöðunni þinni, þá áttu eftir að finna athafnamanninn í þér. Mundu að þú verður fyrst og fremst að tengja huga þinn við að vera ekki of alvörugefinn í metnaði þínum og finnast að einhverjir séu á móti þér. Það er nefnilega ranghugsun. Ekki láta alla vita hvað þú ætlar að gera eða hvert þú ætlar að fara. Haltu því bara elskan mín hjá sjálfum þér. Þetta er merkilegt sumar sem þú munt færa sólskin inn í líf annarra. Og þegar þú gerir það mun sólskinið tvöfaldast inn í þína tilveru. Þú skalt stefna hátt og búast við miklu, því þó það væri sjálf sólin sem þú ætlaðir að fanga og þú gætir það ekki, þá muntu alla vega krækja þér í stjörnu.

Það fer svolítið  í pirrunrar á þér í sambandi við menntun, hvað þú eigir að læra og hvers vegna. En það er alveg sama hvaða menntun þú hefur og þó hún gæti tryggt þér starfið, þá er það samskiptahæfni þín sem tryggir þér stöðuhækkunina, ekki menntunin.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Hrúturinn minn,

eins yndislegur og frábær og þú getur verið, þá áttu það til að vera hefnigjarn og útiloka manneskjur úr lífi þínu ef þér geðjast ekki að einhverjum. Ef þú ert í viðskiptum eða verkefnum sem snúa að því að þú þurfir að hafa heildina í lagi, þá þarft þú að brjóta odd af oflæti þínu. Því það verður að vera alveg skýrt að til þess að þú njótir þín, þá þarftu að finna leiðir, orð eða athafnir til þess að aðrir njóti sín og líði vel.

Alveg sama hvaða stöðu þú gegnir, þá ert þú mikilmenni og þarft að sýna mikilmennsku þína með því hvernig þú ætlar að fara með þér minni menn. Svo teldu upp að þrjátíu áður en þú gerir eitthvað sem þú gætir séð eftir. Það er viss óróleiki eða órói sem getur verið að pirra þig, en þú ert alveg nógu sterkur til að láta það eins og vind um eyrun þjóta. Nú er sumarið að blasa við þér og þú ert eina merkið sem er svo mikilvægt fyrir að plana sumarið. Þú þolir svo illa að vera í engu og að lífið sé ekki að hreyfast í kringum þig, því þú hefur svo gaman að því að vinna og átt erfitt með að sleppa tökunum til að taka þér frí.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

Elsku Nautið mitt,

það er svo dásamleg orka allt í kringum þig, svo mundu að hugsa að anda hamingjunni inn eins djúpt og þú getur og eins þegar þú andar henni út. Gerðu þetta eins oft og þú getur og andaðu henni að þér alveg niður í magastöð.

Þín sterkustu einkenni eru iðni, þor og greind og ef þér finnst þig vanti eitthvað af þeim einkennum, þá er það blekking. Þú færð bestu tækifærin þegar þú hlýðir eðlisávísun þinni og kvikar alls ekki frá settu marki, þrjóski vinur minn og viljastyrkurinn þinn mun koma þér á óvart. Þú ert svo trygglynd og fögur í ástinni, en láttu ekki afbrýðisemi stjórna einu né neinu, því afbrýðisemi er frekja.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál