Karl Lagerfeld látinn

Karl Lagerfeld er látinn.
Karl Lagerfeld er látinn. mbl.is/AFP

Fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld er látinn 85 ára gamall. Franskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Þjóðverjinn hefði látist í París. BBC og fleiri fjölmiðlar greina frá þessu. Lagerfeld var listrænn stjórnandi Chanel þegar hann lést en áður hafði Smartland greint frá veikindum hans. 

Til­kynn­ing kom frá tísku­hús­inu eft­ir sýn­ing­u Chanel í janúar um að list­ræni stjórn­and­inn hafi verið of þreytt­ur til að koma á sýn­ing­una. 

Lagerfeld fæddist í Hamborg í Þýskalandi en laug lengi vel til um aldur sinn. Hann flutti sem unglingur til Parísar og varð aðstoðarmaður Pierre Balmain áður en hann byrjaði að vinna fyrir tískuhús á borð við Fendi og Chloe á sjöunda áratug síðustu aldar. 

Hann hóf að starfa fyrir Chanel árið 1983. Ári seinna stofnaði hann einnig sitt eigið merki, Karl Lagerfeld. 

Karl Lagerfeld á tískusýningu Chanel.
Karl Lagerfeld á tískusýningu Chanel. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál