Áhrifavaldarnir Camilla Rut Rúnarsdóttir og Sólrún Diego eru enn góðar vinkonur og virðist ekkert vera til í þeim sögusögnum sem hafa gengið síðustu vikuna. Sólrún birti mynd af afmæliskortinu á Instagram í dag þar sem greinilega kom fram að Camilla gaf henni gjöf ásamt vinkonuhópnum.
Sólrún hefur sett inn afmælismynd af sér þar sem hún þakkar fyrir kveðjurnar. Undir myndina skrifaði Camilla: „Svo glæsileg - Til hamingju aftur“.
Á vef Hringbrautar var því velt upp fyrir helgi hvort Camilla og Sólrún væru hættar að vera vinkonur. Í gær hélt Sólrún upp á afmælið sitt ásamt góðum vinkonum og var Camilla ekki í því afmæli í gær líkt og Smartland greindi frá í morgun.
Camilla var þá stödd í afmæli hjá annarri vinkonu sinni, áhrifavaldinum Tinnu Björk Kristinsdóttur, en Tinna hélt afmælið sitt í Reykjanesbæ. Camilla er einmitt búsett í Reykjanesbæ og segir í viðtali við Vísi að hún hafi ákveðið að fara í það afmæli þar sem hún er með barn á brjósti og gæti skotist heim til þess að gefa barninu brjóst fyrir svefninn.