Það má með sanni segja að allt hafi verið á útopnu um helgina eftir að öllum aðgerðum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru var aflétt. Fólk flykktist á djammið og út að borða og gerði allt sem það langaði til að gera hömlulaust. Smartland tók saman það helsta af Instagram í liðinni viku.
Áhrifavaldurinn Guðrún Veiga Guðmundsdóttir hefur verið með pensilinn á lofti í Vestmannaeyjum.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir skellti sér út á lífið.
Fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir hafði það gott með systrum sínum.
Áhrifavaldurinn og verkfræðingurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir skellti sér á skíði í Austurríki.
Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir minntist Kúbuferðarinnar með hlýhug.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir kom fram um helgina.
Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra hafði það notalegt með hundunum sínum.
Tónlistarkonan Berglind Saga Bjarnadóttir djammaði í Dúbaí.
Áhrifavaldurinn og doktorsneminn í sálfræði Bergsveinn Ólafsson minnti fylgjendur sína á að strákar gráti líka.
Dansarinn Ástrós Traustadóttir klæddist öllu svörtu.
Fjölmiðlakonan Anna Marsibil Clausen er á leið í fæðingarorlof.
Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir var á ferð og flugi.
Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason hafði það notalegt um helgina.
Fyrrverandi fótboltakappinn Rúrik Gíslason henti í selfie.
TikTok-stjarnan Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir birti mynd af sér og kærastanum.
Tískubloggarinnn Elísabet Gunnarsdóttir hafði það náðugt.
Ljósmyndarinn og fyrirsætan Helgi Ómarsson var ánægður með helgina.