Byggir Varg Veum að hluta til á sjálfum sér

Þóra Karítas Árna­dótt­ir heim­sótti norska rit­höf­und­inn Gunnar Staalesen í síðasta þætti af Morð í norðri. Staalesen býr í Bergen en hann hefur skrifað fjöldan allan af bókum um einkaspæjarann Varg Veum. Bækurnar hafa notið mikilla vinsælda og ótal bíómyndir hafa verið gerðar um einkaspæjarann en því miður hefur aðeins ein bók verið þýdd eftir Gunnar Staalesen á íslensku. Einkaspæjarinn vann sem félagsráðgjafi í málefnum barna áður en hann fór út í starfið. Ólíkt Gunnari er hann fráskilinn en hann stundar hlaup eins og Gunnar hefur gert alla sína tíð og ólst upp á svipuðum slóðum og höfundurinn í Bergen. 

Morð í norðri er í op­inni dag­skrá Sjón­varpi Sím­ans á fimmtu­dög­um klukk­an 20:30 en öll serí­an er þegar aðgengi­leg á Sjón­varpi Sím­ans Premium. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál