Vikan var hressileg á Instagram. Fólk fór í sumarbústað, í gelluferðir til útlanda eða bara á djammið í miðbæ Reykjavíkur. Ásdís Rán rifjaði upp gamlar minningar og birti ljósmynd af sjálfri sér síðan hún var 16 ára.
Kristján Einar Sigurbjörnsson, Kleini, og Hafdís Björg Jónsdóttir einkaþjálfari fóru í sumarbústað með börnin hennar.
Berglind Pétursdóttir Festival fór til Patreksfjarðar um helgina en þar fór Skjaldborgarhátíðin fram.
Ragga Ragnarsdóttir, leikkona og sunddrottning, baðaði sig.
Viktoría Kjartansdóttir áhrifavaldur og söngkona býr í París og elskar það.
Ingi Torfi Sveinsson og Linda Rakel Jónsdóttir gengu í hjónaband á dögunum. Nú verja þau hveitibrauðsdögunum á Ítalíu.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta og athafnakona, var einu sinni 16 ára að stíga sín fyrstu skref í glamúrheiminum.
Aron Can er staddur í útlöndum og eins og sjá má væsir ekki um hann.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar fagnaði því að dóttir hennar, Katrín Erla, væri útskrifuð úr FB.
Leikaraparið Aldís Amah Hamilton og og Kolbeinn Arnbjörnsson eyddu ljúfum dögum saman í menningarborginni Cambridge.
Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir gerði sig klára fyrir „date night“ með kærastanum, Valgeiri Gunnlaugssyni.
Helga Margrét Agnarsdóttir nýtti laugardagssólina vel.
Birgitta Líf Björnsdóttir var klár á djammið með vinkonunum.
Katrín Tanja Davíðsdóttir hafnaði í öðru sæti á undanúrslitamóti Crossfit-leikana sem fram fór um helgina og er því á leið á sitt tíunda heimsmót.
Fyrirsætan og skóhönnuðurinn, Andrea Röfn Jónasdóttir, rifjaði upp gamla takta á golfvellinum.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er stödd í sólinni í Barcelona á Spáni, en þar er allt orðið vel grænt.
Það er fátt sem toppar djamm með vinkonunum að mati Sunnevu Einarsdóttur áhrifavalds.
Tónlistarkonan Bríet skemmti sér konunglega í Kaupmannahöfn.
Leikkonan og áhrifavaldurinn, Kristín Pétursdóttir, þráir sólina ekkert minna en aðrir og birti skemmtilega minningu úr eyðimörkinni.
Það væsir ekki um knattspyrnumanninn Hörð Björgvin Magnússon og Móeiði Lárusdóttur. Þau birtu draumkenndar myndir af sér á Instagram þar sem þau voru á strönd með svínum.
Einkaþjálfarinn Alexandra Sif Nikulásdóttir sletti úr klaufunum með kærastanum Arnari Frey Bóassyni.
Skemmtikrafturinn Eva Ruza klæddi sig upp eins Kim Kardashian.