Það leit út fyrir að breska söngkonan Rita Ora hefði drifið sig úr sturtunni og beint á rauða dregilinn á evrópsku tónlistarverðlaunahátíð MTV um helgina en Ora mætti á baðsloppnum.
Við baðsloppinn var hún að sjálfsögðu með handklæði á höfðinu. Á einhvern ótrúlegan hátt náði Ora að láta klæðnaðinn virka og gerðu demantshálsmen og eyrnalokkar sitt til þess að upphefja glamúrinn. Pinnahælarnir settu síðan punktinn yfir i-ið.
Ora stal þó ekki baðsloppnum af hótelherbergi sínu heldur var sloppurinn úr vor- og sumarlínu Palomo Spain.
Þetta var ekki eini baðsloppurinn sem Ora sem var kynnir á hátíðinni klæddist þetta kvöldið. Hún flutti lag í öðrum og styttri baðslopp.