Karl Lagerfeld og samstarfsmenn hans hjá Chanel náðu að fullkomna hauststemminguna í haust- og vetrarlínu Chanel þegar fyrirsæturnar gengu um í laufblöðum á tískusýningu Chanel í París.
Sýningin var haldin í Grand Palais-höllinni í París og var búið að koma þar fyrir trjám og laufblöðum. Ekki í fyrsta skipti sem lagt er í mikinn undirbúning í höllinni og hefur Eiffel-turni verið komið fyrir þar inni.
Yfirhafnir fengu sitt pláss á sýningunni ásamt fallegum kjólum í haustlitum sem nutu sín í kringum laufblöðin. Sérstaka athygli vöktu grifflur sem fyrirsæturnar skörtuðu, sumar náðu upp fyrir olnboga. Aðrir aukahlutir vöktu einnig athygli rétt eins og síð hálsmen og ósamstæðir eyrnalokkar.