Victoria Tsai fer yfir það hvernig fólk eigi að hugsa um húðina í bókinni sinni Pure Skin: Discover the Japanese Ritual of Glowing. Í bókinni veitir hún ráð sem eru innblásin af japönskum hefðum. Mind Body Green birti brot úr bókinni þar sem kennir ýmissa grasa.
Tsai sem ólst upp í Bandaríkjunum segir að þar séu oft hugsað um húðina út frá vandamálum. í Japan hins vegar segir hún að hugsað sé um húðina eins og einn hluta af heilsu, rétt eins og að vera á hreinu mataræði eða æfa reglulega.
Hér má finna heilræði Tsai sem eru undir japönskum áhrifum. Af ráðum hennar að dæma er það ljóst að mismunandi persónuleikar þurfa að fara eftir mismunandi ráðum.
1. Tsai minnir fólk sem er duglegt að prófa sig áfram með húðvörur á að það taki tíma fyrir húðina að venjast nýju vörunni. Segir hún það til dæmis taka um tvær vikur til þess að sjá árangur með nýju rakakremi. Það sem hún tekur frá Japönunum er að gefa húðinni raunsæjan tíma áður en önnur vara er prófuð.
2. Það eru margir sem eiga sínar uppáhaldshúðvörur. Það getur verið gott en Tsai minnir fólk að að breyta til þegar þess þarf. Húðin þarf á mismunandi vörum á að halda eftir árstíðum og loftslagi. Það þarf því að hluta vel á húðina.
3. Það er algengt að vilja grípa til skyndilausna þegar nokkrar bólur birtast á andlitinu. Tsai vill hins vegar að fólk hætti slíkri lausnahugsun og byrji að fyrirbyggja vandamálin og koma þannig í veg fyrir bólur, þurrk og önnur vandamál. Hún segir það klassíska japanska leið að koma í veg fyrri vandamál og halda þannig ljómanum í stað þess að tækla vandamálin eftir að þau koma upp. Það sé ekki bara gert með efnum heldur líka ýmsum nuddaðferðum.
4. Svo eru það aðrir sem nenna lítið að hugsa um húðina, að nota mörg krem er einfaldlega of flókið fyrir suma. Tsai vill hins vegar meina að húðumhirða þurfi ekki að vera flókin, fólk þurfi bara að hreinsa húðina og gefa henni raka og næringu. Það sem hún leggur áherslu á að fólk geri er að nota augnkrem þar sem húðin í kringum augun er viðkvæmari en á öðrum stöðum á andlitinu. Noti maska eða rakagefandi sprey.