Leik- og tónlistarkonan Jennifer Lopez hefur nú hannað íþróttalínu og hún er sjúklega flott. Lopez hannaði línuna í samstarfi við Niyama Sol og er líf hennar og tónlistarferill innblásturinn fyrir fötin. Lopez er dugleg í ræktinni og oft hefur sést til hennar í fötum frá Niyama Sol í ræktinni.
Í línunni eru þrjár íþróttabuxur og þrír íþróttatoppar. Á einum buxunum eru myndir sem Lopez hefur tekið á ferðalögum sínum og myndir af ferli hennar. Einnig eru textabrot úr dagbókum hennar og lagatextum hennar á buxunum.