Game of Thrones-stjarnan Sophie Turner er ekkert að flækja hlutina og notar sama ilm og unnusti hennar, Jonas-bróðirinn Joe Jonas. Turner greindi frá öllum helstu snyrtivöruleyndarmálum sínum í viðtali við Elle.
Það er mikilvægt að eiga góðan maskara en Turner segist nota maskara frá Dior sem kallast Diorshow Black Out. Segist hún líka nota farða frá Dior. Uppáhaldsvaraliturinn er hins vegar frá Charlotte Tilbury.
Þegar hún er spurð út í herrailmi segist hún elska ilm frá Le Labo. Segir hún að lyktin sé karlmannsleg og bæði hún og unnusti hennar noti ilminn. Segist hún elska herrailm.