Söngvarinn Adam Levine, kom fram á stærsta sjónvarpsviðburði Bandaríkjanna um þessar mundir, Ofurskálinni. Levine gerði sér lítið fyrir og fór úr að ofan í tónlistaratriðinu með hljómsveitinni sinni Maroon 5.
Eins og myndirnar sýna frá þessum viðburði er Levine með mikið af húðflúri. Aðdáendur söngvarans elskuðu þessi tilþrif hans á meðan aðrir voru á því að það hefði verið betra hefði hann verið í bolnum.
Levine nýtti tækifærið til að breiða út boðskap sinn um ást og kærleika. Hann var með færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann skrifaði upp orð sem komu í huga hans fyrir viðburðinn. Orð á borð við: Fyrirgefning, hlátur, grátur, bros, líf og áhrif komu fram á listanum hans.