Samfélagsmiðlastjarnan Kara Kristel er ekki feimin við að koma til dyranna eins og hún er klædd. Í gær sýndi hún fylgjendum sínum slitförin á kvið sínum og benti þeim á að það þyrfti ekki flatan maga til að vera „hot“.
„Gleðilegan mánudag frá mér og minni slitnu tussubumbu til þín og þinna! Ekki gleyma það þarf ekki flatan maga til að vera hot,“ skrifaði Kara við myndina af sér.
Mynd Köru hefur vakið mikla athygli og sýndi hún meðal annars skilaboð frá fylgjanda sem þakkaði henni kærlega fyrir að sýna slitin. „TAKK, fyrir að deila þessari mynd! Ég er slitin og sigin eftir barnsburð og sé ekkert nema þessa „ideal“ kroppa eftir barnsburð,“ sagði fylgjandinn. Kara er sjálf móðir og hefur talað um það á instagram að hún fékk mikil slitför á meðgöngunni.
„13 ára fékk ég mér gat í naflann, 16 ára var maginn minn skorinn upp á fjórum stöðum og 19 ára framleiddi ég barn - gæti skrifað ehv bodypositive væmið en staðreyndin er sú að hvorki slitin né örin hafa nokkurn tímann verið fyrir mér eða óöryggi, thats hot I'm hot allir með slit og ör eru hot,“ skrifaði Kara við aðra mynd sem hún birti í október.