Forsetafrúin ögraði í netsokkabuxum

Jill Biden forsetafrú Bandaríkjanna klæddist netasokkabuxum í síðustu viku.
Jill Biden forsetafrú Bandaríkjanna klæddist netasokkabuxum í síðustu viku. AFP

Forsetafrú Bandaríkjanna, dr. Jill Biden, klæddist netsokkabuxum þegar hún og eiginmaður hennar, Joe Biden, lentu á Andrews Air Force-flugvellinum í Maryland í síðustu viku. Netsokkabuxurnar hafa vakið þó nokkra athygli og margir leitað sér að eins sokkabuxum á netinu.

Við sokkabuxurnar klæddist frú Biden svörtum kjól með pleðurstroffi og svörtum jakka með gylltum hnöppum. Hún var í svörtum ökklaháum stígvélum við. 

Umræða skapaðist á samfélagsmiðlinum Twitter um sokkabuxur Biden og þótti mörgum ansi djarft af henni að ögra hugmyndinni um hina settlegu og fullkomnu forsetafrú á þennan hátt. Viðbrögðin voru þó að mestu jákvæð og skrifaði til dæmis einn að Biden mætti klæðast hverju því sem hana langaði til að klæðast.

„Réttu upp hönd ef þér finnst forsetafrúin hafa rokkað þessar sokkabuxur,“ skrifaði annar.

Mörgum þótti netasokkabuxurnar ansi töffaralegar.
Mörgum þótti netasokkabuxurnar ansi töffaralegar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál