Fyrrverandi leikaraparið Brad Pitt og Gwyneth Paltrow skörtuðu eins hárgreiðslum þegar þau voru saman á tíunda áratug síðustu aldar. Paltrow sagði þau ekki hafa farið í hárgreiðslu saman en samt litu þau út fyrir að vera tvíburar.
Paltrow fór yfir nokkrar eftirminnilegar hárgreiðslur á instagramsíðu sinni með aðstoðarmanni sínum, Kevin Keating. Hárgreiðslumaðurinn stóðst ekki mátið og spurði hana út í hárgreiðsluna sem þau Pitt voru með á frumsýningu myndarinnar The Devil's Own árið 1997.
Leikkonan upplýsti að hárgreiðslumaðurinn Chris McMillan væri maðurinn á bak við hárstíl þeirra á þessum tíma. Hann er goðsögn í hárgreiðsluheiminum og er einnig maðurinn á bak við hina frægu Rakelar-hárgreiðslu sem Jennifer Aniston skartaði í Vinum.
Liturinn á hári þeirra var svipaður en Paltrow sagði að þau hefðu farið til sama hárgreiðslumannsins í klippingu. „Var það með ráðum gert að vera í stíl?“ spurði aðstoðarmaðurinn. „Nei,“ svaraði þá leikkonan.