Katrín stal senunni í gylltum kjól

Katrín hertogaynja stal senunni á frumsýningu No Time To Die …
Katrín hertogaynja stal senunni á frumsýningu No Time To Die í gærkvöldi. AFP

Katrín hertogaynja af Cambrigde skein skært eins og stjarna á rauða dreglinum fyrir frumsýningu Bond-kvikmyndarinnar No Time To Die í Royal Albert Hall í London í gær. Það má með sanni segja að Katrín hafi stolið senunni en hún glæddist gylltum kjól. 

Kjóllinn er eftir Jenny Packham en Katrín hefur reglulega leitað til hennar fyrir stóra viðburði. Við hinn gullfallega kjól var hún í beigelitum hælum og með stóra eyrnalokka. Hún var með hárið uppsett í fallegri greiðslu. 

Vilhjálmur Bretaprins, eiginmaður Katrínar, fylgdi henni á frumsýninguna en hann klæddist klassískum smóking með þverslaufu. Faðir hans, Karl Bretaprins, var einnig með í för og eiginkona hans, Kamilla hertogaynja af Cornwall. 

Breska konungsfjölskyldan klæddi sig upp fyrir tilefnið.
Breska konungsfjölskyldan klæddi sig upp fyrir tilefnið. AFP

Auk kóngafólksins var fjöldi frægðarmenna úr bresku samfélagi á frumsýningunni. Stórleikarinn og James Bond sjálfur, Daniel Craig, var að sjálfsögðu viðstaddur. Rami Malek, sem einnig fer með hlutverk í kvikmyndinni, Léa Seydoux og Lashana Lynch. Knattspyrnumaðurinn og fyrirliði enska karlalandsliðsins í fótbolta, Harry Kane, lét einnig sjá sig. Systkinin Billie Eilish og Finneas O'Connell voru einnig viðstödd en þau sömdu titillag myndarinnar.

Kjóll Katrínar er frá Jenny Packham.
Kjóll Katrínar er frá Jenny Packham. AFP
Hertogahjónunum var vel fagnað á frumsýningunni.
Hertogahjónunum var vel fagnað á frumsýningunni. AFP
Karl Bretaprins og tengdadóttir hans Katrín.
Karl Bretaprins og tengdadóttir hans Katrín. AFP
Daniel Craig og Katrín hertogaynja heilsast. Craig sagði við hana …
Daniel Craig og Katrín hertogaynja heilsast. Craig sagði við hana að hún liti ansi fallega út, eða „jolly lovely“ á frummálinu. AFP
Karl Bretaprins heilsaði einnig upp á stórleikarann.
Karl Bretaprins heilsaði einnig upp á stórleikarann. AFP
Lashana Lynch, Daniel Craig og French Lea Seydoux.
Lashana Lynch, Daniel Craig og French Lea Seydoux. AFP
Rami Malek og Phoebe Waller-Bridge.
Rami Malek og Phoebe Waller-Bridge. AFP
Harry Kane og eiginkona hans Katie Goodland.
Harry Kane og eiginkona hans Katie Goodland. AFP
Daniel Craig.
Daniel Craig. AFP
Systkinin Finneas O'Connell og Billie Eilish.
Systkinin Finneas O'Connell og Billie Eilish. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál