Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner var ekki sú eina sem mætti í brúðarkjól á Met Galakvöldinu sem fram fór á Metropolitan-safninu í New York í vikunni. Leikkonan Emma Stone mætti í sínum eigin brúðarkjól sem hún lét aðlaga fyrir kvöldið.
Kjóllinn sem Stone klæddist er frá Louis Vuittonþ Hann er með fallegu v-hálsmáli og fjöðrum.
Stone og eiginmaður hennar Dave McCary gengu í hjónaband í september árið 2020. Þau kynntust fyrst við tökur á Saturday Night Live árið 2016 þegar hann leikstýrði henni í skets. Hann bað hana að giftast sér á skrifstofum Saturday Night Liver árið 2019.
Faraldurinn hafði áhrif á brúðkaup þeirra Stone og McCary en þau ætluðu upphaflega að gifta sig í mars árið 2020 en vegna veirunnar frestuðu þau athöfninni. Þau eignuðust sitt fyrsta barn saman í mars á síðasta ári.