Flottustu föt landsins fást nú á netinu

Bónusfatalínan er nú seld á netinu.
Bónusfatalínan er nú seld á netinu.

Bónus opnaði í dag vefverslun með vinsælu fatalínunni sem kom í nokkrar Bónus verslanir í haust merktum fyrirtækinu.

Bónus gaf út nýja fatalínu í haust með derhúfum, bolum og hettupeysum vegna mikillar eftirspurnar erlendis frá á sannkölluðu Bónus verði. Fatnaðinn var einungis hægt að kaupa í nokkrum völdum Bónus verslunum. Nú hefur Bónus opnað netverslun þar sem að hægt er að versla fatnaðinn og fá pantanir sendar bæði erlendis og innanlands.

„Viðtökurnar við fatalínu Bónus hafa verið mjög skemmtilegar og farið fram úr okkar björtustu vonum. Við fáum næstum daglega fyrirspurnir um hvort að ekki sé hægt að fá varninginn sendan erlendis og einnig innanlands. Það er einstaklega ánægjulegt að geta orðið við þessum óskum með nýju netverslunni. Þar sem að okkar kjarnastarfsemi er sala á matvöru á hagstæðu verði en ekki sala og dreifing á fatnaði ákváðum við að leita til Górilla vöruhús sem að sér um dreifingu og pantanir fyrir okkur. Nú geta viðskiptavinir pantað sér hátísku derhúfu, peysu eða boli með gamla eða nýja grísnum og fengið sendan út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál