Flottustu konunglegu kjólarnir árið 2022

Margir urðu hissa þegar Katrín valdi eiturgrænan síðkjól við verðlaunaafhendingu …
Margir urðu hissa þegar Katrín valdi eiturgrænan síðkjól við verðlaunaafhendingu í Boston í desember. Litavalið þótti afar djarft en margir hrósuðu henni fyrir að stíga út fyrir þægindarammann. Kjólinn leigði hún fyrir tilefnið. AFP

Í ár sýndu kvenkyns meðlimir evrópskra konungsfjölskyldna sínar bestu hliðar og klæddust fjölmörgum glæsikjólum við hátíðleg tækifæri. Smartland tók saman eftirminnilegustu kjólana.

Mestu athyglina fékk Katrín prinsessa af Wales en hún þykir sjaldan slá feilnótu hvað klæðaburð varðar. Hún er íhaldsöm og heldur sig oftar en ekki við breska hönnuði á borð við Jenny Packman og Alexander McQueen. Stundum stígur hún þó út fyrir kassann og klæðist til dæmis aðeins meira töff merkjum eins og Vampires Wife og Solace London. Doppur voru vinsælar hjá Katrínu í sumar og klæddist hún ýmsum afbrigðum af doppóttum kjólum við hin og þessi tækifæri.

Þá var ánægjulegt að sjá Charlene prinsessu aftur á meðal fólks eftir erfið veikindi en hún þykir mjög smekkleg og hefur einstaklega gott auga fyrir tísku. 

Yngri prinsessurnar eru einnig farnar að láta til sín taka en helst má geta Ísabellu prinsessu sem er mjög oft í töffaralegum buxnadrögtum. Þá verður áhugavert að fylgjast með hvernig fatastíll Ingiríðar Noregsprinsessu og Katrínu krónprinsessu Hollands þróast þegar sviðsljósið beinist í auknum mæli að þeim.

Græni liturinn var einnig afar vinsæll hjá drottningum og prinsessum í ár og voru Katrín og Charlene báðar í mjög eftirminnilegum grænum síðkjólum.

Mary krónprinsessa vakti mikla lukku í fallegum rauðum kjól með …
Mary krónprinsessa vakti mikla lukku í fallegum rauðum kjól með túrkisskreyttu belti úr smiðju Andrew Gn. Ísabella var í hvítri Max Mara dragt af mömmu sinni. AFP
Það er gaman að fylgjast með Maximu Hollandsdrottningu en hún …
Það er gaman að fylgjast með Maximu Hollandsdrottningu en hún er oft í mjög stílhreinum og skemmtilegum kjólum. AFP
Katrín klæddist fallegum rauðum kjól eftir Jenny Packman við veisluhöld …
Katrín klæddist fallegum rauðum kjól eftir Jenny Packman við veisluhöld í Buckinghamhöll í desember. AFP
Í nóvember klæddist Katrín prinsessa dásamlegum hvítum kjól úr smiðju …
Í nóvember klæddist Katrín prinsessa dásamlegum hvítum kjól úr smiðju Jenny Packman. AFP
Charlene prinsessa þótti glæsileg til fara í fagurgrænum kjól frá …
Charlene prinsessa þótti glæsileg til fara í fagurgrænum kjól frá Lanvin sem var sérstaklega gerður fyrir hana. AFP
Doppur voru vinsælar í ár og vildu allir eignast þennan …
Doppur voru vinsælar í ár og vildu allir eignast þennan kjól Katrínar sem hún klæddist á Ascot veðreiðunum í sumar. Þessi kjóll er úr smiðju Alessöndru Rich. AFP
Meghan var í glæsilegum Louis Vuitton kjól í New York …
Meghan var í glæsilegum Louis Vuitton kjól í New York í haust. AFP
Katrín prinsessa var óaðfinnanleg í hvítum og svörtum síðkjól eftir …
Katrín prinsessa var óaðfinnanleg í hvítum og svörtum síðkjól eftir Roland Mouret. AFP
Katrín hertogaynja var falleg í bleikum kjól frá Vampires Wife …
Katrín hertogaynja var falleg í bleikum kjól frá Vampires Wife í Belís. Ljósmynd/Breska konungfjölskyldan
Soffía prinsessa Svíþjóðar var í glæsilegum ljósbláum kjól á dögunum …
Soffía prinsessa Svíþjóðar var í glæsilegum ljósbláum kjól á dögunum með áföstum hvítum blómum. AFP
Katrín var í bláum kjól með hvítum doppum á Wimbledon …
Katrín var í bláum kjól með hvítum doppum á Wimbledon mótinu í sumar. Kjóllinn er frá Alessöndru Rich. AFP
Gaman verður að fylgjast með yngri prinsessunum í framtíðinni hvað …
Gaman verður að fylgjast með yngri prinsessunum í framtíðinni hvað klæðaburð varðar. Þær eru strax farnar að móta eigin fatastíl. Skjáskot/Instagram
Mette Marit Noregsprinsessa var í fallegum
Mette Marit Noregsprinsessa var í fallegum "retró" kjól í sumar úr smiðju Peter Dundas. Skjáskot/Instagram
Silvía drottning var afar glæsileg í þessum fjólubláa síðkjól þegar …
Silvía drottning var afar glæsileg í þessum fjólubláa síðkjól þegar hún var á tónleikum YoYo Ma. Hann er eilítið óformlegri en hennar hefðbundnu kjólar. Skjáskot/Instagram
Maxima Hollandsdrottning klæðist oft óvenjulegum en smart kjólum.
Maxima Hollandsdrottning klæðist oft óvenjulegum en smart kjólum. Skjáskot/Instagram
Græni liturinn var ákaflega vinsæll í ár hjá kóngafólkinu. Viktoría …
Græni liturinn var ákaflega vinsæll í ár hjá kóngafólkinu. Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar klæddist grænum síðkjól fyrir skömmu. Skjáskot/Instagram
Rania drottning er alltaf mjög flott til fara. Hér er …
Rania drottning er alltaf mjög flott til fara. Hér er hún í rándýrum kjól úr smiðju Andrew Gn en hann kostar um 7 þúsund pund.
Margrét Þórhildur fagnaði krýningarafmæli í ár. Hún þótti afar glæsileg …
Margrét Þórhildur fagnaði krýningarafmæli í ár. Hún þótti afar glæsileg í ljósbláum, aðsniðnum flauelskjól. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál