Systurnar stálu senunni á tískuvikunni í París

Systurnar við hlið Kris Jenner á sýningu Balenciaga.
Systurnar við hlið Kris Jenner á sýningu Balenciaga. Skjáskot/Instagram

Systurnar Paris Hilton og Nicky Hilton Rothschild áttu góða daga á tískuvikunni í París á dögunum. Múgur og margmenni umkringdu þær hvert sem þær fóru og höfðu þær gaman af athyglinni.

Þær fóru meðal annars á tískusýningu Stellu McCartney sem frumsýndi sumarlínu næsta árs við góðar undirtektir. Á þeirri sýningu sást greinilega hversu ólíkur fatastíll systranna er. Almennt þykir Nicky Hilton mun látlausari og íhaldssamari í fatavali á meðan Paris er djarfari.

Að þessu sinni klæddist Paris Hilton mjög flegnum hvítum blúndukjól á meðan Nicky Hilton Rothschild klæddist látlausari bláum kjól, hnepptum upp í háls með löngum ermum. Hún náði þó að poppa upp hinn hefðbundna kjól með töffaralegum sólgleraugum í svokölluðum aviator stíl.

Loks fóru systurnar einnig á sýningu Balenciaga og nýttu tækifærið og klæddust mjög djörfum fötum frá Balenciaga. Þar steig Nicky Hilton út fyrir þægindarammann og klæddist svörtum, þröngum samfestingi og íburðarmikilli kápu. Útlit sem hún er síður en svo þekkt fyrir.

Systurnar klæddar í Balenciaga.
Systurnar klæddar í Balenciaga. Skjáskot/Instagram
Paris Hilton og Nicky Rothschild sýndu sínar bestu hliðar.
Paris Hilton og Nicky Rothschild sýndu sínar bestu hliðar. AFP
Cate Blanchett var töffaraleg á sýningunni.
Cate Blanchett var töffaraleg á sýningunni. AFP
Cate Blanchett (t.h.) og Robert Downey Jr léku á als …
Cate Blanchett (t.h.) og Robert Downey Jr léku á als oddi fyrir sýningu Stellu McCartney. AFP
Stellu McCartney var ákaft fagnað að lokinni sýningu.
Stellu McCartney var ákaft fagnað að lokinni sýningu. AFP
Nýja sumarlína McCartney er flott og stílhrein.
Nýja sumarlína McCartney er flott og stílhrein. AFP
Það er fátt fágaðra en að hafa Eiffel-turninn sem bakgrunn …
Það er fátt fágaðra en að hafa Eiffel-turninn sem bakgrunn tískusýningar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál