Svona vill maður sigra bikarleik

„Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu. við gáfumst aldrei upp og þetta kom í lokin,“ sagði Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmaður bikarmeistara Stjörnunnar, þegar mbl.is tók hana tali eftir sigurinn á Selfossi á Laugardalsvelli í dag, 2:1.

Selfoss var yfir allt þar til átta mínútur voru eftir og stressið var farið að segja til sín. „Það fór smá um mig, ég viðurkenni það. Við vorum að sækja og sækja en það var þolinmæði og karakter. Svona vill maður sigra bikarleik, þetta er æðislegt,“ sagði Anna, en Stjarnan var að vinna titilinn annað árið í röð.

„Það er alltaf jafn góð tilfinning að vinna og hún verður bara betri í hvert skipti,“ sagði Anna Björk, en nánar er rætt við hana í meðfylgjandi myndskeiði.

Sjá: Stjarnan bikarmeistari eftir magnaða endurkomu

Sjá: Ólafur fékk brasilískt vatnsbað í miðju viðtali

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert